Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. mars 2026

Norðaustan hvassviðri eða stormur gengur yfir landið í dag. Víða gæti þurft loka vegum með stuttum fyrirvara. Allar leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu eru meðal þeirra sem eru á óvissustigi.

Bandaríkjaforseti segist hafa átt í gagnlegum viðræðum við Írana um lok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.

Yfirmaður Norðurherstjórnar Bandaríkjanna telur þörf á aukinni viðveru á Grænlandi. Bandaríkjamenn vilja hernaðaruppbyggingu á minnsta kosti þremur stöðum.

Atvinnuvegaráðherra segir framlengingu búvörusamninga tryggja stöðugleika - umfangsmikil vinna fram undan við endurskoðun á stuðningskerfi við bændur.

Flugstjóri og aðstoðarflugmaður létust í árekstri flugvélar Air Canada og slökkviliðsbíls á Laguardia-flugvelli í New York í nótt. Sjötíu og sex voru um borð í vélinni sem var koma frá Montreal.

Leiðtogar jafnaðarmanna og Moderaterne brugðust illa við í kappræðum danska ríkisútvarpsins í gærkvöld þegar þeir voru spurðir hvern þeir styddu sem næsta forsætisráðherra. Kosið verður í Danmörku á morgun.

Júlía Kristín Jóhannesdóttir setti Íslandsmet í sextíu metra grindarhlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum um helgina, en getur gert enn betur, mati sérfræðings.

Birt

23. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,