Enn önnur lægðin gengur yfir landið í kvöld og í nótt. Gular viðvarnanir taka gildi á Austurhluta landsins í kvöld.
Landrof heldur áfram í Reynisfjöru. Þrátt fyrir stórstreymi og leiðindaveður flykkjast ferðamenn í fjöruna.
Bandaríkjaforseti segist vera að íhuga að draga úr hernaðaraðgerðum gegn Íran. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að loftárásir þeirra og Bandaríkjanna gegn Íran eigi eftir að aukast verulega næstu daga. Þrjár vikur eru síðan stríðið hófst.
Félagar í Samfylkinginni og Sjálfstæðisflokknum koma saman á flokksráðsþingum í dag þar sem línurnar verða lagðar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Langvía sem fannst við Látrabjarg síðasta sumar sló aldursmet tegundarinnar hér á landi. Fuglafræðingar hittu hana fyrst fyrir 29 árum.
Suður-kóreska hljómsveitin BTS snýr aftur í dag eftir nærri fjögurra ára hlé með nýja plötu og stórtónleika í höfuðborg landsins, Seoul. Búist er við að 260 þúsund manns mæti á tónleikana.
Cristina Alba Marcus Hafliðadóttir keppti í 60 metra hlaupi á HM í frjálsum innanhúss í morgun. Hún komst ekki áfram úr undanrásunum.