Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. mars 2026

Formaður utanríkismálanefndar gerir ráð fyrir síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna ESB verði eftir sveitarstjórnarkosningar í maí. Þingið hefur þá tvær vikur til klára málið - eigi atkvæðagreiðslan geta farið fram 29. ágúst.

Ísraelar segjast hafa drepið yfirmann öryggisráðs Írans. Hann birti í gær ákall til ríkja þar sem múslimar eru í meirihluta um stuðning gegn Bandaríkjunum og Ísrael.

Blóðugir og sárir minkar, sem sumir voru farnir naga sig inn beini vegna streitu og kvíða, sjást á myndum sem teknar voru í fyrra á þremur minkabúum af sex sem þá voru starfrækt.

Sjö voru handteknir í nótt fyrir líkamsárás á tvo menn í Reykjavík og verða yfirheyrðir í dag.

Enn er óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum með tilheyrandi samgöngutruflunum. Rýma þurfti atvinnuhúsnæði í Skutulsfirði á í morgun.

Oddviti Miðflokksins í Múlaþingi er ósáttur við ekki leiða listann áfram í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann fullyrðir biblíutilvitnanir sínar á sveitarstjórnarfundum séu ástæðan.

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Portúgal í undankeppni EM í kvöld.

Birt

17. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,