Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24.febrúar 2026

Fjögur ár eru í dag síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Víglínan hefur lítið færst til síðustu ár en mannfall hefur aukist. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er meðal þjóðarleiðtoga í Kyiv.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verði ákærður fyrir hafa valdið sjúklingum ótímabærum dauða. Málið hefur verið þrjú ár hjá héraðssaksóknara.

Öflugri leigumarkaður og styrking hlutdeildarlána er efst á blaði viljayfirlýsingar um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni sem félags- og húsnæðismálaráðherra undirritaði í morgun.

Leikskólabörn sneru aftur á Grandaborg í Reykjavík í morgun - nærri fjórum árum eftir skólanum var lokað vegna myglu.

Skipulagsstofnun segir fyrirhugaða vindaflsvirkjun á Laxárdalsheiði geta haft verulega neikvæð umhverfisáhrif og efast um hvort réttlætanlegt veita henni leyfi.

Norska liðið Bodö/Glimt getur í kvöld tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar karla í fótbolta í fyrsta sinn. Prófessor í íþrótta- og heilsufræði segir árangur Norðmanna í íþróttum enga tilviljun.

Birt

24. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,