Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gærkvöld milljónir skjala úr rannsókn á málum kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epsteins. Vararíkissaksóknari landsins segir litlar líkur á að það sem fram komi í gögnunum leiði til frekari málsókna
Bæjarfulltrúi minnihlutans í Kópavogi ætlar að óska eftir við bæjarstjórn að innri endurskoðun geri úttekt á uppbyggingu nýs Kársnesskóla sem hefur farið tæpa tvo milljarða fram úr áætlun.
Karlalandsliðið í handbolta fékk litla hvíld eftir erfitt tap fyrir Dönum í gær og þurfti að mæta á blaðamannafund í morgun. Evrópska handknattleikssambandið var ekki tilbúið að breyta dagskránni.
Björgunarsveitir um allt land fengu reikning fyrir kílómetragjaldi um mánaðamót þrátt fyrir að vera undanþegnar gjaldinu. Reikningarnir verða felldir niður.
Grindvíkingar halda sitt fyrsta Þorrablót frá rýmingu í kvöld. Von er á um þúsund gestum. Skipuleggjandi segir þetta stórt skref í átt að enduruppbyggingu bæjarins.
Hiti hefur verið yfir frostmarki við Veðurstofuna í Reykjavík samfellt í 13 daga, fyrir utan tíu mínútur í gærmorgun. Þar hefur úrkoma verið lítil og sólskinsstundir margar.