Formaður FÍB segir dæmi um að landeigendur nýti styrki sem ætlaðir eru til uppbyggingar á ferðmamannastöðum til að koma upp gjaldskyldum stæðum. Til skoðunar er að breyta innheimtu- og umferðarlögum til að koma böndum á gjaldskyldu á bílastæðum.
Varnarmálaráðherra Dana fagnar fyrirhuguðum fundi með bandarískum stjórnvöldum. Betra sé að ræða mál Grænlands beint, frekar en með yfirlýsingum í fjölmiðlum.
Franskir bændur fjölmenntu á traktorum í miðborg Parísar í nótt til að mótmæla fríverslunarsamningi Evrópusambandsins við Mercosur-ríkin í Suður-Ameríku. Allar líkur eru á að aðildarríki ESB samþykki hann á morgun.
Formaður kennarasambandsins segir sum ungmenni falla á milli kerfa í kringum framhaldsskólaaldurinn og það sé áhyggjuefni ef ungt fólk er óvirkt um árabil.
Nær fjörutíu hafa verið drepnir síðustu vikur í mótmælum gegn bágu efnahagsástandi í Íran. Bandaríkjaforseti útilokar ekki afskipti.
Gul veðurviðvörun er fyrir Suður- og Suðausturland vegna norðaustan hríðar. Spáð er allt að 23 metrum á sekúndu í Öræfum, og færð gæti spillst.
Svæðistjóri hjá Smyril Line á Seyðisfirði segir engin svör hafa fengist um hvernig eigi að lesa af ökumælum ferðamanna sem koma til landsins svo rukka megi kílómetragjald. Þá sé viðbúið að þeir sem stoppa í styttri tíma borgi daggjöld fyrir fleiri daga en þeir nota.
Evrópumót karla í handbolta hefst eftir rétta viku. Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður, segir að íslenska liðið megi alveg leyfa sér að stóra drauma fyrir mótið.