Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir enga ástæðu til að óttast að Grænland verði tekið með hervaldi - en talskona í Hvíta húsinu segir það koma til greina. Utanríkisráðherra Danmerkur hefur óskað eftir fundi með bandarískum stjórnvöldum.
Landhelgisgæsla Íslands fylgist með rússnesku olíuskipi innan íslenskrar efnahagslögsögu. Skipið er á flótta undan bandarískum stjórnvöldum.
Hafís hefur færst nær landi norður af Hornströndum undanfarna daga. Veðurfræðingur segir aðstæður breytast hratt í stífri norðaustanátt.
Sex hafa látist í óveðri sem gengur yfir Evrópu. Þúsundir flugfarþega komast hvergi vegna snjókomu og hvassviðris.
Forsætisnefnd Alþingis hefur breytt verklagi við tilkynningar um einelti og áreitni ríkisendurskoðanda. Hann var sakaður um einelti og áreitni á vinnustað meðan hann fór sjálfur með mannauðsmál.
Þrjú hafa boðið sig fram í oddvitasæti Viðreisnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosmingarnar í vor, framboðsfrestur er til 16. janúar.
Talsvert tjón varð á bílum á Reyðarfirði þegar efnum var sprautað á þak Fjarðabyggðarhallarinnar í sumar. Efnin fuku um bæinn og settust á 65 bíla. Tryggingarfélag verktakans hefur nú samþykkt að bæta bíleigendum skaðann.
Karlalið Tindastóls vann í gærkvöld útisigur á liði frá Kósovó í Norður-Evrópudeildinni í körfubolta. Tindastóll hefur unnið fimm af sex fyrstu leikjum sínum í keppninni.