Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. desember 2025

Ísland gaf meira eftir en önnur ríki í samkomulagi um makrílveiðar segir forstjóri Síldarvinnslunnar. Það styrki ekki stöðu greinarinnar þar sem þegar útlit fyrir samdrátt.

Gæsluvarðhald yfir karlmanni, sem er í haldi vegna andláts í heimahúsi í Kópavogi, hefur verið framlengt um fjórar vikur.

Bandaríkjaforseti hefur lokað á ferðir allra olíuflutningaskipa, sem sæta viðskiptaþvingunum, til og frá Venesúela. Hann sakar stjórnvöld í Venesúela um stela bandarískum eignum.

Sérfræðingar Veðurstofunnar ætla leggjast yfir rannsóknarskýrslu um snjóflóðið í Súðavík og læra af henni, segir deildarstjóri ofanflóðavarna. Brýnt efla fræðslu og ljúka ofanflóðavörnum við byggð á hættusvæðum.

Strangara regluverk þarf til draga úr líkum á hagsmunaárekstri vegna aukastarfa lögreglumanna á Íslandi. Þetta kemur fram í úttekt GRECO, sem hefur eftirlit með spillingu.

Halldór Blöndal, fyrrverandi forseti Alþingis og ráðherra er látinn. Halldór sat á Alþingi í tæp 30 ár.

Mikið tjón varð í landeldisstöð Tungusilungs á Tálknafirði þegar rafmagn fór af bænum. Rekstrarstjóri sér fram á um fimmtíu milljóna króna tap.

Frumflutt

17. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,