Yfirvöld í Venesúela fordæma hótanir Trumps Bandaríkjaforseta og lokun lofthelgi landsins. Trump boðar frekari hernaðaraðgerðir á næstu dögum. Doktorsnemi í alþjóðastjórnmálum segist ekki eiga von á því að stríð brjótist út milli Bandaríkjanna og Venesúela.
Ráðstöfun afla í byggðakerfi er reiðarslag fyrir sjávarbyggðir á Vestfjörðum að mati formanns Verkalýðsfélags Vestfjarða. Ljóst sé að störfum eigi eftir að fækka.
Það er ekki endilega slæmt að meira greinist af HIV-smitum á Íslandi en á Norðurlöndum, að mati sóttvarnalæknis. Líklega séu smit gripin fyrr hér.
Engin alvarleg umferðarslys urðu á höfuðborgarsvæðinu í nótt eða í gærkvöldi, það snjóaði ekki eins ákaft og óttast var.
Forsætisráðherra Ísraels hefur óskað eftir forsetanáðun vegna yfirstandandi dómsmála gegn honum. Rökin eru þau að með sakaruppgjöf geti hann einbeitt sér að störfum sínum fyrir landið. Stjórnarandstaðan gagnrýnir þetta útspil og hvetur forseta til að hafna beiðininni.
Starfsemi Tónlistarþróunarmiðstöðvar hefur verið tryggð fram á vor. Tekist hefur að semja um að miðstöðin fái að starfa í núverandi húsnæði á Granda fram á vor.
Það verður nóg um að vera hjá íslenskum landsliðum í dag því kvennalandsliðið í handbolta spilar við Úrúgvæ um sæti í milliriðlum HM og karlalandsliðið í körfubolta tekur á móti Bretlandi í undankeppni HM 2027.