Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. nóvember 2025

Hagfræðingur segir nýtt vaxtaviðmið Seðlabankans gæti dugað til bankarnir geti farið veita lán með eðlilegum hætti á nýjan leik. Forsendurnar baki viðmiðinu séu þó með öllu óskiljanlegar.

Tveggja er leitað vegna rannsóknar á fjársvikamáli þar sem hundruð milljónir voru sviknar út úr Landsbankanum. Rúmar tíu milljónir voru sviknar út úr Arion banka, sem tilkynnti Reiknistofnun bankanna um málið.

Engan sakaði þegar eldur kviknaði í tæknirými áfast fjósi á bænum Fellshlíð í Eyjafirði í morgun.

Rússlandsher hefur drepið ellefu almenna borgara og sært yfir fjörutíu í árásum á Úkraínu síðasta sólarhring. Þá gerði herinn árásir á orkuinnviði og því er rafmagnslaust í nokkrum héruðum.

Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni segir sms-skeytalista vegna snjóflóðahættu á vegum hafa sannað gildi sitt. Bæði hafi kerfið komið í vef fyrir slys og það geri fólki kleift skipuleggja ferðir sínar betur á veturna.

Það skýrist vonandi í vor hvort blanda malbiks og steypu geti dregið úr sliti á álagsstöðum þar sem þung umferð er, eins og á strætóstoppistöðvum. Tilraunir standa yfir.

Hærra hlutfall innflytjenda í Finnlandi en innfæddra er í vinnu eða námi og þeir hafa jákvæð áhrif á fjárhag ríkisins, samkvæmt nýrri rannsókn.

Tónlistarkonan Rakel hlaut í gær svokölluð plús-verðlaun Rásar tvö og Iceland Airwaves. Verðlaununum er ætlað hjálpa upprennandi listamönnum koma sér á framfæri.

Frumflutt

8. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,