Lögregla hefur til rannsóknar kynferðisbrot í tveimur leikskólum í Reykjavík. Á öðrum þeirra hefur verið tilkynnt um brot gegn fleiri en tíu börnum. Hitt málið kom upp í síðustu viku.
Flugvellinum í München var lokað í gærkvöld vegna drónaflugs. Stjórnmálamenn þar í landi vilja að lögregla geti skotið dróna tafarlaust niður.
Þjóðaröryggisráð Íslands kom saman til fundar í morgun. Drónaárásir í Evrópu og möguleg viðbrögð Íslands við slíkum árásum var meðal umræðuefna.
Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar fara hörðum orðum um tillögur Reykjavíkurborgar í leikskólamálum og segja byrðum varpað á foreldra. Skorað er á meirihlutann í borginni að falla frá áformum um hækkaða gjaldskrá.
Formaður félags leikskólakennara segir tillögurnar jákvæðar. Ýmis samfélagsleg vandamál geti þó skapast við breytingar sem þessar.
Breska lögreglan tilkynnti í dag að tveir hefðu orðið fyrir skoti lögreglumanna sem brugðust við hryðjuverkaárás á bænahús gyðinga í Manchester í gær.
Samgöngustofa segir eftirlit með flugöryggi ekki fela í sér afskipti af rekstri einkafyrirtækja. Misskilnings gæti um hlutverk Samgöngustofu í umræðu um fall Play.
Þrír þingmenn Miðflokksins sækjast eftir embætti varaformanns flokksins. Embættið verður endurvakið á landsþingi flokksins um aðra helgi.
Fyrirburi lést skömmu eftir fæðingu af völdum mislinga í Alberta í Kanada. Heilbrigðisráðherra fylkisins segir móður barnsins hafa smitast af mislingum á meðgöngu.
September var hlýr um allt land, sérstaklega norðan- og austanlands. Það stefnir í að árið verði eitt það hlýjasta á Íslandi frá upphafi mælinga.
Ástin, hjónabandið, velgengni og hvernig á að svara gagnrýni eru yrkisefni tólftu hljómplötu bandarísku stórstjörnunnar Taylor Swift, The Life of a Show girl, sem kom út í morgun.
Keppni í úrvalsdeild karla í körfubolta hófst í gærkvöld og heil umferð var spiluð í úrvalsdeild karla í handbolta þar sem Afturelding hélt sigurgöngu sinni áfram.