Hádegisfréttir

Hádegisfréttir. 2. október 2025

Ísraelski sjóherinn handtók fjölda fólks sem ætlaði sigla Gaza-strönd með vistir. Sérfræðingur í þjóðarétti segir verið framfylgja hafnbanni sem hefur gilt í 18 ár. Íslendingur í flotanum segir Ísraelsher stunda sjórán.

Ferðaskrifstofur sitja eftir með sárt ennið þegar flugfélög falla, segir framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu sem stóð í ströngu koma farþegum heim þegar Play féll í vikunni.

Tveir létust og þrír særðust þegar maður ók á hóp fólks við bænahús gyðinga í Manchester á Englandi í morgun

Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir herða þurfi aðgerðir gegn skuggaflota Rússa, sem notaður er til flytja olíu framhjá viðskiptaþvingunum.

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir talsvert fleiri hópuppsagnir í september en gengur og gerist. Auk þeirra fjögurhundruð sem misstu vinnuna hjá Play hafi tvö hundruð og átta starfsmönnum verið sagt upp í hópuppsögnum.

Jarðskjálftahrina hófst í nótt við Grjótárvatn á Snæfellsnesi og var stærsti skjálftinn þá 3,2. Jafnstór skjálfti varð á tíunda tímanum í morgun.

Hægt er ráðast í ýmsar undirbúningsframkvæmdir í Grindavík strax, þótt dýrar framkvæmdir á yfirborði þurfi bíða, segir jarðverkfræðingur. Hugmyndir um framtíðaruppbyggingu í bænum voru kynntar í gær.

Fyrirhugaðar laxeldiskvíar Kaldvíkur í Seyðisfirði skarast við netlög landeigenda og hefur fyrirtækið sótt um nýja staðsetningu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir enn eigi eftir kanna hvort veiðibann við kvíar nái inn fyrir netlögin.

Frumflutt

2. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,