Um átján þúsund manns eru strandaglópar vegna falls flugfélagsins Play í gær. Forsætisráðherra segir þetta minna efnahagslegt högg fyrir þjóðarbúið en þegar WOW air varð gjaldþrota.
Hamas ætlar að skoða tillögur Bandaríkjanna að friði á Gaza með opnum huga. Fulltrúar Hamas ræða í dag við fulltrúa stjórnvalda í Katar og Tyrklandi. Ekkert lát er á árásum Ísraelshers á Gaza.
Sonur eins verjanda í Þorlákshafnarmálinu fékk lögregluvernd eftir umfjöllun fréttastofu um málið. Formaður Lögmannafélags Íslands segir dæmi um alvarlega áreitni í garð lögmanna.
Vegagerðin skoðar hvort hækka þurfi varnargarða við Jökulsá í Lóni þar sem vegur fór í sundur á föstudag. Svæðisstjóri segir slíka hækkun þó ekki hefði dugað til í vatnsveðrinu fyrir helgi.
Úkraína hefur sent hernaðarsérfræðinga til Danmerkur til að æfa varnir gegn drónum með dönskum hermönnum.
Forstjóri barna- og fjölskyldustofu segir erfitt að manna sérfræðistöður á landsbyggðinni og þess vegna ekki gerð krafa um heilbrigðismenntun hjá umsækjendum um stöðu hópstjóra á meðferðarheimilinu Lækjarbakka.
Heidelberg Materials, sem hyggur á námuvinnslu á Íslandi, furðar sig á að vera á lista Sameinuðu þjóðanna yfir fyrirtæki sem starfa í landtökubyggðum Ísraela. Það hafi hætt starfsemi þar fyrir tveimur árum síðan.
Þjálfaraskipti hafa orðið hjá karlaliði Vestra í fótbolta fyrir síðustu þrjá leiki tímabilsins.