Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. ágúst 2025

Fjárhúsi skolaði út á haf í miklum sjógangi við Vík í Mýrdal. Björgunarsveitir reyndu bjarga verðmætum

Ekkja fórnarlambsins í Þorlákshafnarmálinu bar vitni við aðalmeðferð í morgun. Hún segir manninn hafa verið órólegan áður en hann var sóttur.

Kona sem kærði ofbeldi í nánu sambandi segist mjög ánægð með niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu. Dómstóllinn dæmdi íslenska ríkið brotlegt því mál hennar fyrndist hjá lögreglu.

Mannskæð árás Ísraelshers á spítala á Gaza í gær hefur vakið hörð viðbrögð meðal ráðamanna og alþjóðlegra stofnanna. Forsætisráðherra Ísraels segir árásin hafi verið óhapp.

Sjálfstæðisflokkurinn endurheimtir stöðu sína sem stærsti flokkurinn í borginni samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Fylgi Sósíalista hefur helmingast á síðustu mánuðum.

Hlutabréf í frönskum bönkum hafa fallið, sem og vísitölur á mörkuðum í Frakklandi. Vantraust vofir yfir ríkisstjórninni.

Sumarið var það hlýjasta Íslandssögunni þar sem hvert hitametið á fætur öðru féll. Veðurfræðingur lítur þó ekki á hlýindin sem sérstakt gleðiefni.

Skipulagsstofnun gagnrýnir Arctic Hydro fyrir takmarkaðar upplýsingar í umhverfismati fyrir Geitdalsárvirkjun á Héraði en telur matið þó uppfylla kröfur.

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er komið til Póllands þar sem liðið leikur fyrsta leik á EM á fimmtudag. Nýliðinn í hópnum fór í gegnum tilfinningarússíbana í aðdraganda mótsins.

Frumflutt

26. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,