Þjóðarleiðtogar víða um heim óttast stigmögnun og útbreiðslu átaka í Miðausturlöndum eftir að Bandaríkin gerðu loftárásir á kjarnorkuinnviði í Íran í nótt. Stjórnvöld í Teheran hóta hefndum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir nauðsynlegt að alþjóðasamfélagið þrýsti á um samningaviðræður. Hernaður sé ekki lausnin.
Límmiðar sem seldir voru hér á landi undir þeim formerkjum að þeir veiti vörn gegn 5G-geislun reyndust innihalda geislavirk efni. Forstjóri Geislavarna ríkisins biður fólk að skila límmiðunum til stofnunarinnar.
Hvalasérfræðingur segir hækkað hitastig sjávar og breytingar á hafsstraumum skýring á aukningu grindhvala við Ísland. Rúmlega sextíu grindhvölum var bjargað við Ólafsfjörð í gær eftir að þeir lentu í grynningum.
Tveir þriðju Íslendinga hafa upplifað sálræn áföll í æsku og sá hópur er líklegri til að glíma við heilsufarsvanda á fullorðinsárum.
Fimleikakonan Hildur Maja Guðmundsdóttir skrifaði nýjan kafla í fimleikasöguna á Íslandi í gær þegar hún nældi sér í silfurverðlaun á heimsbikarmóti.