Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. júní 2025

Umræðu um bókun 35 verður framhaldið á Alþingi í dag. Þetta er aðeins í þriðja skiptið á þessari öld sem boðað er til þingfundar á sunnudegi.

Þrír eru í haldi lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna gruns um kynferðisbrot. Bíladagar voru haldnir á Akureyri um helgina og mikið var um hraðakstur sögn varðstjóra.

Minnst tíu voru drepnir og 200 særðir í árásum Íranshers á Ísrael í nótt. Yfirvöld í Íran hafa ekki gefið upplýsingar um mannfall þar. Í dag er þriðji dagur átaka á milli ríkjanna.

Sex manns hefur verið ráðinn bani á Íslandi það sem af er ári. Manndráp voru átta talsins á síðasta ári. Frönsk kona var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gærkvöld vegna tveggja andláta.

Fjölmenn mótmæli gegn meintum einræðistilburðum Bandaríkjaforseta voru haldin um gervöll Bandaríkin meðan umfangsmikil hersýning var haldin í höfuðborginni.

Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki hefur þróað loftlagsvænt steinlím í stað sements. Frá og með september þarf reikna kolefnisspor nýbygginga á Íslandi.

Á Þingvöllum er í dag tekið forskot á hátíðarhöld vegna þjóðhátíðardagsins. Við verðum í beinni frá Þingvöllum í fréttatímanum.

Frumflutt

15. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,