Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. júní 2025

Lögreglan var kölluð Edition-hótelinu við Reykjavíkurhöfn á áttunda tímanum í morgun og hefur unnið rannsókn á vettvangi síðan þá. Lögreglan hefur ekki viljað staðfesta við fréttastofu hvað gerðist.

Ísrael og Íran halda áfram loftárásum á víxl. minnsta kosti þrír hafa verið drepnir í Ísrael og hátt í áttatíu í Íran. Varnarmálaráðherra Ísraels segir Teheran muni brenna láti Íransher ekki af sínum árásum.

Frumvarp um breytingu á veiðigjöldum var afgreitt úr atvinnuveganefnd Alþingis í morgun við mikla andstöðu þingmanna minnihlutans. Þingfundur stendur yfir á Alþingi.

Björgunarsveitir hafa fundið 279 lík þar sem þota Air India hrapaði á íbúðahverfi í indversku borginni Ahmedabad í fyrradag.

Hugað er öryggismálum við Brúará eftir ferðamaður féll í ánna og drukknaði. Ferðamálastjóri segist ekki hrifinn af lokunum og bönnum við náttúruperlur.

Mikilvægt er foreldrar séu forvitnir um það sem börnin þeirra eru gera, segir deildarstjóri á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Dæmi eru um börn myndi vinskap við gervigreind -- með misjöfnum afleiðingum.

Heyskapur er óvenju snemma á ferðinni í ár. Bóndi í Landeyjum kláraði fyrsta slátt sumarsins þremur vikum fyrr en gengur og gerist. Hann segist ekki muna eftir öðru eins.

Frumflutt

14. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,