Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. júní 2025

Farþegaflugvél hrapaði skömmu eftir flugtak á Indlandi í morgun. Allir 244 sem voru um borð eru taldir af. Vélin skall á íbúðahverfi.

Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í veitingarekstri segist hvorki þekkja haus sporð á stéttarfélaginu Virðingu. Samkeppniseftirlitið sektar samtökin um milljón á dag fyrir neita afhenda gögn um félagið.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur í ár lagt hald á meira magn af kókaíni en allt síðasta ár. Tveir voru nýverið handteknir á Keflavíkurflugvelli eftir hafa reynt smygla tólf kílóum af kókaíni til landsins.

Neytendasamtökin telja bílastæðafyrirtæki hafa framið víðtæk brot við innheimtu á svokölluðum vangreiðslugjöldum. Þau telja álagningin dulbúin innheimta.

Árlegur fundur valdhafa í stjórnmálum, svokallaður Bilderberg-fundur, hófst í Stokkhólmi í dag. Yfir 100 manns eru á fundinum sem mikil leynd er yfir.

Spáð er ársverðbólga hækki lítillega út þetta ár. Líkur á frekari vaxtalækkunum fara því þverrandi.

Vörumerki Sýnar voru sameinuð undir einu nafni í dag . Forstjórinn segir skapa eigi samræmt vörumerki.

Frumflutt

12. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,