Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 11. júní 2025

Óljóst er hvers vegna hjól losnaði af flugvél í gærkvöld og lenti við Alþingishúsið. Þetta er skilgreint sem alvarlegt flugatvik -

Tugir manna voru handteknir fyrir brjóta útgöngubann í Los Angeles sem sett var vegna mótmæla undanfarinna daga. Bandaríkjaforseti segir mótmælendur ógna friði og sjálfstæði bandarísku þjóðarinnar.

Loftslagsváin er ein stærsta ógn samtímans. Þetta er mat evrópskrar nefndar um loftslag og heilsu. Nefndin segir aðgerða þörf strax.

Salmonella hefur greinst á kúabúi í Eyjafirði. Sjaldgæft er sýkingin greinist í nautgripum hér á landi. Matvælastofnun biður bændur í nágrenninu vera vakandi fyrir sjúkdómseinkennum.

Formaður samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirvara á áformum flugfélagsins Play valdi því ekki hægt tala um högg á ferðaþjónustuna. Hins vegar gætu einhver áhrif komið fram í vetur.

Atkvæðagreiðsla hefst eftir hádegi um vantraust á ríkisstjórn Póllands. Forsætisráðherrann bað sjálfur um atkvæðagreiðsluna eftir þjóðernissinni var kjörinn forseti.

Frumflutt

11. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,