Fjórir menn voru handteknir í nótt grunaðir um að hafa mætt vopnaðir á heimili lögreglumanns og hótað honum. Héraðssaksóknari rannsakar málið.
Minnst níu voru drepnir í skotárás í skóla í Graz í Austurríki í morgun. Árásarmaðurinn svipti sig lífi.
Leit hófst að nýju í morgun að göngumanni sem skilaði sér ekki af Esjunni í gærkvöld. Gönguhópar björgunarsveita eru í fjallinu og leitað er með drónum.
Töluvert af bensíni fannst á vettvangi brunans við Hjarðarhaga í Reykjavík í síðasta mánuði. Lögregla rannsakar málið sem íkveikju. Tveir létust í eldsvoðanum.
Karlmaður sem varð fyrir stórfelldri líkamsárás við Samtún í Reykjavík um mánaðamótin lést um helgina.
Dregið hefur úr mótmælum í Los Angeles gegn innflytjendastefnu Bandaríkjastjórnar. Forseti Bandaríkjanna fjölgaði þjóðvarðliðum þar í gær, við litla hrifningu yfirvalda í borginni.
Rafmagnslaust er á stórum hluta Suðurlands eftir að rafmagn fór af Hvolsvallarlínu í morgun. Í Vestmannaeyjum og Vík er búið að keyra upp varaafl en óvíst hvað viðgerð tekur langan tíma.
Ríkislögreglustjóri segir skipta máli að stjórnvöld geti fengið upplýsingar um alla þá sem koma til landsins. Skipulagðir glæpahópar hafi hingað til getað nýtt sér glufu í kerfinu og valið flugfélög sem ekki hafa afhent farþegalista.
Heilbrigðisráðherra telur að samhæfa þurfi meðferð fyrir konur með endómetríósu.