Norðan stórrigning með kulda og krapahríð á fjöllum gengur yfir austan- og norðanvert landið. Veðurfræðingur spáir langvarandi úrkomu á Norðurlandi og hættu á skriðuföllum. Bændur og björgunarsveitir reyna að bjarga fé sem fennti í Skíðadal skammt frá Dalvík.
Hægri flokkur Geerts Wilders hætti í hollensku ríkisstjórninni í morgun vegna ágreinings um innflytjendamál. Skyndikosningar eru líklegar.
Ísraelsher er sakaður um að hafa skotið að almennum borgurum sem sóttu sér neyðaraðstoð við dreifingarstöð í borginni Rafah í morgun. Sameinuðu þjóðirnar saka Ísraelsher um stríðsglæpi.
Það er spurning hvort ekki sé affarasælast fyrir Ísland að taka Evrópuskrefið til fulls segir fyrrverandi formaður utanríkismálanefndar fyrir Vinstri græn. Verja þurfi gildi sem þorri Evrópuríkja eigi sameiginleg.
Lögreglan tók rafbyssu upp úr slíðrinu nærri 30 sinnum á fyrsta ársfjórðungi, sem er oftar en í fyrra.
Laun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna hækka um fimm komma sex prósent um næstu mánaðamót. Þingfararkaup hækkar um áttatíu og fimm þúsund krónur og laun forseta um rúmar tvö hundruð þúsund á mánuði.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta þarf á sigri að halda gegn sterku liði Frakklands á Laugardalsvelli í kvöld. Veðrið gæti gagnast íslenska liðinu.