Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. maí 2025

Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára. Hagfræðingur segir búferlaflutning Grindavíkinga hafa mest áhrif, en hækkunin er sérlega mikil á Suðurnesjum.

Bæði Arion banki og Íslandsbanki vilja sameinast Kviku og telja samruni skapi mikil tækifæri. Fjármálagreinandi segir stjórn Kviku standi frammi fyrir tveimur góðum kostum.

Ísland getur mætt kröfum um aukin útgjöld NATO-ríkja til varnar og öryggismála, með því fjárfesta í mikilvægum innviðum. segir forsætisráðherra, sem hitti framkvæmdastjóra NATO í Brussel.

Verðbólgan mældist 3,8 prósent í maí og hjaðnar á milli mánaða. Matvæli halda áfram hækka í verði.

Vegagerðin hefur uppfært búnað fyrir um 150 milljónir króna. Símafyrirtækin hætta tvö G og þrjú G farsímaþjónustu um allt land í lok árs. Vegagerin hefur áhyggjur af dreifingu og verra samband á vegum úti.

Tugir hafa sagt sig úr Sósíalistaflokknum eftir hallarbyltingu um helgina. Óvíst er hvort staða pólitísks leiðtoga flokksins verður áfram til. - Ritari segir fyrrverandi flokksmenn snúa aftur.

Alcoa Fjarðaál samþykkti bætur til fyrirtækis sem keypti 2000 manna vinnubúðaþorp á Reyðarfirði. Þegar eigandi búðanna hugðist sækja þær, fyrir átta árum, hindraði Alcoa það með stórum steypuklumpum.

Frumflutt

28. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,