Rannsókn á eldsvoða á Hjarðarhaga í Reykjavík í gær, þar sem einn lést, beinist meðal annars að því hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Bandaríkjaforseti leggur til að lagður verði 50% tollur á allar vörur frá Evrópusambandsríkjum, frá fyrsta júní. Markaðir á Evrópu tóku dýfu um hádegi þegar þetta var tilkynnt.
Þorsteinn Már Baldvinsson hættir sem forstjóri Samherja í júní. Baldvin Þorsteinsson, sonur hans, tekur við keflinu.
Forsætisráðherra Ísraels ræðst af hörku gegn leiðtogum Bretlands, Frakklands og Kanada, sem hótuðu í vikunni aðgerðum gegn Ísrael. Hann segir þá röngum megin sögunnar, þar sem barnamorðingjar í Hamas fagni yfirlýsingum þeirra.
Háskólaráðherra segir íslensk stjórnvöld í viðbragðsstöðu vegna ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um að banna Harvard-háskóla að taka við erlendum nemum.
Ríkisstjórnin hefur lagt línur um hvernig sveitarfélögum verða tryggðar tekjur af virkjanamannvirkjum sem hingað til hafa verið undanþegin fasteignaskatti. Hluta af tekjunum yrði skipt á milli sveitarfélaga.
Svo mikið er í Blöndulóni að það gusast upp úr því. 20 ár eru síðan lónið fylltist síðast. Leigutakar í Blöndu telja að vatnshæðin hafi ekki áhrif á veiði í sumar.
Fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta varar Íslendinga við því að vekja athygli Trumps. Beini hann sjónum sínum að Íslandi komist hann að því að hér er enginn her.