Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. apríl 2025

Frans Páfi er látinn, 88 ára aldri. Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa minnst hans, meðal annars fyrir styðja þá sem minna mega sín og koma á umbótum í kaþólsku kirkjunni.

Andlát páfa er eins og andlát föður, segir kaþólski biskupinn á Íslandi. Biskup Íslands segir Frans páfa hafa staðið með þeim sem minna mega sín, hann hafi verið einstakur.

Rauði hálfmáninn í Palestínu segir skýrslu ísraelska hersins um dráp þeirra á 15 hjálparstarfsmönnum á Gaza í síðasta mánuði fulla af lygum. Almannavarnir Gaza saka ísraelsher um skipulegar aftökur.

Stuðningi stjórnvalda við fyrirtæki í Grindavík verður breytt og tekið mið af aðstæðum hvers og eins fyrirtækis. Á morgun hefst fundaröð með fulltrúum fyrirtækja svo útfæra megi aðgerðirnar þannig þær nýtist sem best.

Áttatíu ár eru liðin frá því fyrsta bókin um Línu Langsokk kom út í Svíþjóð. Ævintýri Línu hafa verið þýdd á áttatíu tungumál - það nýjasta er nígeríska.

Frumflutt

21. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,