Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5.mars 2025

Formaður BSRB segir það jafngildi stríðsyfirlýsingu ef reynt verður fella á brott ákvæði um áminna þurfi opinbera starfsmenn áður en til uppsagnar kemur. Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri leggur það til.

Donald Trump ítrekaði áhuga sinn á Grænlandi í metlangri stefnuræðu í Bandaríkjaþingi í gær. Það virðist komin þýða í samskipti hans og forseta Úkraínu en hernaðarstuðningur er enn á ís.

Leiðtogaráð Evrópusambandsins undirbýr milljarða evra stuðning við Úkraínu. Tvö ríki sambandsins eru því mótfallin. Ganga á frá málinu á leiðtogafundi á morgun.

Mikilvægt er fjölga meðferðarheimilum fyrir börn með fjölþættan vanda, segir barnamálaráðherra. Fjöldi barna fær ekki nauðsynlega þjónustu.

Nýr meirihluti tilkynnti, í fyrstu aðgerðaáætlun sinni á borgarstjórnarfundi í gær, fyrirtækjaleikskólar væru ekki á dagskrá. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir þetta mikil vonbrigði.

Syngjandi furðurverur eru á ferð um borg og og skólastarf er víða skert á öskudaginn.

Ísland spilar í Póllandi á Evrópumóti karla í körfubolta í sumar. Íslenskir aðdáendur geta keypt miða í forsölu.

Frumflutt

5. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,