Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. mars 2025

Kennara samþykktu í atkvæðagreiðslu sem lauk á hádegi nýgerða kjarasamninga við ríki og sveitarfélög.

Bandaríkjaforseti hefur stöðvað alla hernaðaraðstoð til Úkraínu og ætlar þannig þvinga fram viðræður um vopnahlé. Alþjóðlegt tollastríð er í uppsiglingu eftir Bandaríkjastjórn hækkaði tolla á Kanada, Kína og Mexíkó.

Icelandair ætlar hætta áætlunarflugi til Ísafjarðar á næsta ári. Formaður bæjarráðs segir flugið nauðsynlegt. Samgönguráðherra vill skoða innanlandsflug í heild.

Talsvert tjón varð á hafnarmannvirkjum og íbúðarhúsnæði í Sandgerði vegna ofsaveðurs sem gekk yfir landið um helgina.

Tillögur um hagræðingu í ríkisrekstri verða kynntar í dag.

Veitingamaður á Vitanum á Akureyri reiknar með yfir þúsund gestum í sprengidagsmat í hádeginu þar sem boðið verður upp á saltkjöt í tilefni dagsins.

Frumflutt

4. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,