Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. janúar 2025

Samtök atvinnulífsins leggja til ríkið selji Íslandsbanka, Landsbankann, ÁTVR og Íslandspóst. Samtökin segja sölu á ríkiseignum geta skilað lágmarki fjögur hundruð milljörðum og sparað tugi milljarða á ári í vaxtakostnað.

Hættuleg fölsuð lyf geta litið út fyrir vera frá viðurkenndum lyfjaframleiðanda, segir verkefnastýra skaðaminnkunar á Landspítala. Ógjörningur fyrir fólk vita hvort það er með fölsuð lyf.

Aðeins örlítill minnihluti Grænlendinga er fylgjandi því landið verði hluti af Bandaríkjunum og langflestir eru andvígir þeirri hugmynd

Minnst fimmtán létust í troðningi á trúarhátíð á Indlandi í morgun. Hátíðin er stærsta í heimi og gert var ráð fyrir um 400 milljón gestum.

Aðeins eru þrjú dæmi um fasteignafélagið Þórkatla hafi einhliða lækkað kaupverð fasteigna í Grindavík. Forstjórinn telur það lögmætt í ljósi slæms ástands þeirra.

Fötluð börn geta ekki verið ein heima eins og eldri grunnskólabörn í verkfalli kennara. Umhyggja, félag langveikra barna og fleiri samtök hvetja sveitarfélög til veita fötluðum börnum samfellda þjónustu eins og þeim ber lagaleg skylda til.

Ef ekki veiðist loðna í vetur verður Bæjarsjóður Fjarðabyggðar af 140 milljónum króna. Tjónið næmi hundruðum milljóna fyrir samfélagið allt.

Nýja björgunarskipið, Björg frá Rifi kom fiskibát til bjargar í nótt. Skipstjórinn á Björgu segir viðbragðstímann hafa styst um rúmlega 20 mínútur.

Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir landið allt frá föstudegi fram á sunnudagskvöld. Búast við umhleypingum, asahláku og stormi.

Frumflutt

29. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,