ok

Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. maí 2024

Nemandi við Oslóarháskóla, sem stakk íslenskan kennara í fyrrahaust, hefur verið ákærður fyrir morðtilraun.

Minnst sex eru látin eftir eldflaugaárás Rússa á úkraínsku borgina Kharkiv í morgun. Vaxandi þungi er í sókn Rússa í norðausturhluta Úkraínu, þar sem um fjórtán þúsund manns hafa flúið heimkynni sín. Bandaríkjamenn íhuga að aflétta banni við að vopn frá þeim séu notuð gegn skotmörkum í Rússlandi.

Mikil eftirspurn er eftir húsnæði, bæði til kaups og leigu, fleiri íbúðir seljast á yfirverði og leiga hækkar. Innkoma Grindvíkinga á markaðinn hefur áhrif segir hagfræðingur.

Lögreglan í Hafnarfirði leitar enn manns sem réðst á tólf ára stúlku í við Víðistaðaskóla í gær og biðlar til fólks að láta vita af grunsamlegum mannaferðum.

Landris heldur áfram og skjálftavirkni sömuleiðis á Reykjanesskaga. Ekkert bendir sérstaklega til þess að gos sé í vændum þrátt fyrir að 17 milljón rúmmetrar af kviku hafi safnast fyrir í kvikugeyminum undir Svartsengi.

Það er að duga eða drepast fyrir forsætisráðherra Bretlands í komandi kosningum. Niðurstöðurnar gætu ráðið úrslitum um pólitíska framtíð hans. Snörp kosningabarátta hófst í dag með hvelli.

ISAVIA ætlar að rukka bíleigendur sem leggja lengur en í fimm klukkustundir við flugvellina í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum og hefst gjaldtakan á næstu dögum. Oddviti Miðflokksins í Múlaþingi segist frekar verða settur í járn en að borga gjaldið sem auki enn frekar ferðakostnað þeirra sem þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur.

Frumflutt

23. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,