ok

Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 31. október 2023

Ísraelsmenn segjast hafa hæft um þrjú hundruð skotmörk á Gaza og hafna kröfum um vopnahlé. Sameinuðu þjóðirnar og hjálparsamtök vara við frekari hörmungum á svæðinu.

Forsætisráðherra Noregs segir að aldrei hafi komið til greina að sitja hjá í atkvæðagreiðslu Sameinuðu þjóðanna um ástandið á Gaza, líkt og hinar Norðurlandaþjóðirnar gerðu. Alltaf þurfi að fordæma hryðjuverk með skýrum hætti. Þing Norðurlandaráðs hefst í dag.

Formaður Framsóknarflokksins vissi ekki af atkvæðagreiðslunni en hann telur engan meiningarmun á afstöðu ráðherra ríkisstjórnarinnar. Þau fordæmi allt ofbeldi, hvar sem er í heiminum.

Átta ára drengur lést í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær.

Það er fjármálaráðherra umhugsunarefni hversu þungt húsnæðisliðurinn vegur í verðbólgumælinum og hefur Hagstofan það til skoðunar að minnka vægi hans.

Byrjað er að kortleggja viðbrögð ef eldgos stefnir innviðum á Reykjanesskaga í hættu. Innviðaráðherra segir miklu máli skipta að raforkuflutningskerfið sé öflugt og sérstaklega Suðurnesjalína.

830 eftirlitsmyndavélar eru á 82 stöðum í Reykjavík. Persónuverndarfulltrúi hjá borginni segir að heildarstefnu skorti.

Hundrað farþegar komu með fyrsta áætlunarflugi EasyJet frá London til Akureyrar í dag. Tekið var á móti þessum fyrstu farþegum við hátíðlega athöfn á Akureyrarflugvelli.

Í dag er hrekkjavaka og margir gera sér dagamun, skreyta hús og klæðast búningum. Hátíðin skipar sífellt stærri sess.

Frumflutt

31. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,