ok

Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 11. febrúar 2024

Tugir manna unnu í nótt að viðgerðum á Njarðvíkurlögninni og miðar verkinu vel þótt aðstæður hafi verið erfiðar. Sjóða þarf saman tugi stórra stálröra utandyra fyrir nýja hjáveitulögn og heldur verkið áfram í dag.

Næstu daga og nætur gæti orðið kalt í húsum á Suðurnesjum . Almannavarnir brýna fyrir íbúum að fara sparlega með rafmagn.

Mælingar benda til þess að landris sé hafið að nýju við Svartsengi. Eldfjallafræðingur á von á því að atburðarás síðasta goss endurtaki sig.

Íbúðahús brann til grunna skammt norðan við Flúðir í morgun. Erfiðlega gekk að komast að húsinu en enginn var inni þegar eldurinn kom upp.

Forsætisráðherra Ísraels lofar að örugg leið verði gerð fyrir óbreytta borgara í Rafah þegar innrás verður gerð í borgina. Hann hyggst halda þeirri áætlun til streitu þrátt fyrir viðvarandi víða að.

Formaður Félags Ísland-Palestína segir jákvætt að embættismenn á vegum utanríkisráðuneytisins hafi verið sendir til Egyptalands vegna dvalarleyfishafanna á Gaza. Hins vegar eigi eftir að koma í ljós hvort ferðin skili árangri.

Kansas City Cheifs og San Francisco 49ers leika í kvöld um hina eftisóttu Ofurskál í amersíka fótboltanum. Sérfræingar spá því að höfðingjarnir frá Kansas vinni leikinn.

Frumflutt

11. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,