Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 7. nóvember 2025

Dómsmálaráðherra segir afstöðu þings og almennings til máls ríkislögreglustjóra skýra, hún vinni málið eins hratt og hún geti.

Forsætisráðherra segir erfitt fyrir ríkisstjórnina stíga með beinum hætti inn í mál Norðuráls. Gert er ráð fyrir viðgerð á álverinu á Grundartanga taki um ár.

Björgunarsveitarfólk sem selur neyðarkallinn fær niðrandi athugasemdir um húðlit hans. Neyðarkallinn í ár er straumvatnsbjörgunarsveitarmaður, til minningar um björgunarsveitarmann sem lést við æfingar í fyrra. Hann var ættleiddur frá Indlandi.

Í nýju frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir útlendinga er meðal annars kveðið á um valdheimildir starfsfólks, sem í frumvarpsdrögum hétu fangaverðir.

Sprengingar heyrðust í höfuðborg Súdans í morgun á yfirráðasvæði stjórnarhersins. Líklega er RSF - uppreisnarherinn gera þar árásir, þrátt fyrir hafa samþykkt tillögur milligöngumanna um vopnahlé í gær.

brú verður steypt yfir Breiðholtsbraut um helgina og lokað fyrir umferð. Vegagerðin hefur áhyggjur af umferð flutningabíla með háfermi undir brúna.

Breið samstaða hefur myndast á norska Stórþinginu um Norðmenn noti olíusjóðinn til tryggja risalán til Úkraínu. Evrópusambandið hefur verið með svona lán í undirbúningi, en hefur ekki náð samstöðu aðildarríkja um áformin.

Dagur gegn einelti er á morgun. Í tilefni þess var frumflutt lag í dag sem hvetur til samstöðu gegn einelti. Þolendur eineltis segja tilfinninguna vonda.

Frumflutt

7. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,