Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 7. september 2025

Fjórir hið minnsta voru drepnir í umfangsmestu loftárás Rússlandshers á Úkraínu til þessa, þeirra á meðal tveggja mánaða drengur og móðir hans. Stjórnarráðið í Kyiv var hæft í árásum næturinnar, Í fyrsta sinn frá því stríðið hófst.

Atvinnulífið bíður þess sjá hvort fleiri skattar verði lagðir á atvinnugreinar landsins, segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem verður kynnt á morgun. .

Sveitarstjórn Grímnes- og Grafningshrepps ætlar gefa út framkvæmdaleyfi í þriðja sinn fyrir stórfelldu malarnámi í Seyðishólum. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur í tvígang fellt framkvæmdaleyfið úr gildi.

Slitinn kapall er talinn vera ástæða togvagnaslyss á miðvikudag í Lissabon þar sem sextán fórust. Kapallinn stóðst sjónræna skoðun nokkrum klukkutímum fyrir slysið.

Maður sem lifði af áralangar sjálfsvígshugsarnir ráðleggur öðrum sem glíma við slíkt tala við aðra. Vandinn vaxi í einveru og þögn en með samtali fáist sýn og léttir. Hann skrifaði skáldsögu um reynslu sína og gaf út í minningu vinar.

Karlsvaka, til minningar um Karl Sighvatsson orgelleikara, verður haldin í kirkjunni í Þorlákshöfn í dag, en Karl hefði orðið 75 ára á morgun. Hann lést í bílslysi liðlega fertugur, en markaði djúp spor í íslenskt tónlistarlíf.

Frumflutt

7. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,