Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13. október 2025

Öllum gíslum Hamas hefur verið sleppt sem og þúsundum Palestínumanna úr ísraelskum fangelsum. Bandaríkjaforseti sagði í ísrelska þinginu martröðin væri á enda.

Forseti Íslands segir konur hafa hugrekki til knýja fram aðkallandi breytingar í heiminum. Hún er í opinberri heimsókn í Kína og flutti ávarp á jafnréttisráðstefnu.

Tilkynningum um ofbeldi meðal barna og gegn börnum hefur fjölgað mikið, segir verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra. Aðgerðarhópur stjórnvalda fundar í dag um ofbeldismál barna.

Verslunareigandi á Akureyri segir mörgu hyggja eigi rekstur halda velli. Breytt neysluhegðun og aðgengi hafi þar mikið segja.

Framtíð Landnámseggja í Hrísey er óljós eftir sölubann var sett á vegna díoxínmengunar. Stofninn var aflífaður í byrjun mánaðar.

Danski lyfjaframleiðandinn Novo Nordisk hefur sett sjaldgæfan augnsjúkdóma á lista yfir aukaverkanir þyngarstjórnunarlyfja, meðal annars Ozempic og Wegovy. Lyfjaframleiðandinn hafði áður neitað tengsl væru þar á milli.

Nýr miðbær verður byggður upp á Hornafirði undir stjórn sama félags og byggir upp nýjan miðbæ á Selfossi. Útgerðarfyrirtækið Skinney þinganes verður líkindum helsti fjárfestirinn.

Íslenska karlalandsliði í fótbolta mætir því franska á Laugardalsvelli í kvöld í fjórða leik liðsins í Undankeppni HM 2026. Nokkrar af stærstu stjörnum Frakka sitja heima.

Frumflutt

13. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,