Ísraelsher segist hafa eyðilagt á fjórða tug hernaðarlegra skotmarka í Íran í dag. Þrír evrópskir utanríkisráðherrar leita sátta og ræða við kollega sína frá Íran eftir hádegi.
Netárásir hafa aldrei verið fleiri hér á landi. Þrjótarnir reyna langoftast að komast yfir kortanúmer eða lykilorð. Sviðsstjóri hjá netöryggissveit Cert-is segir að þessu megi ekki taka af léttúð.
Þingmenn neðri málstofu breska þingsins greiða í dag atkvæði um að leyfa dánaraðstoð fyrir dauðvona sjúklinga í Englandi og Wales.
Viðhaldsfrekur sendiherrabústaður í Brussel verður seldur. Búið er að kaupa nýja íbúð í miðborginni. Utanríkisráðuneytið gæti þurft að reiða út meira en tvö hundruð milljónir króna vegna flutninganna.
Uppsjávarskip halda til makrílleitar í dag og veiðar gætu hafist á næstu dögum. Fiskmjölsverksmiðjurnar leita logandi ljósi að rafmagni svo ekki þurfi að knýja þær með olíu á vertíðinni.
Fjórir skákmenn eru efstir og jafnir fyrir næst síðasta dag Íslandsmótsins í skák. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gæti unnið sinn fjórtánda titil.