Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. júní 2025

Enn halda átök milli Ísrael og Íran áfram, fimmta daginn í röð. Í nótt kváðu sprengingar við í borgum beggja landa. Bandaríkjaforseti segist ekki stefna vopnahléi heldur endalokum átakanna.

Enginn verður ráðinn aðstoðarríkislögreglustjóri eftir fráfarandi vararíkissaksóknari hafnaði stöðunni. Hann fer á eftirlaun.

Forseta Íslands varð tíðrætt um stöðu heimsmála í hátíðarávarpi á Austurvelli í morgun og sagði margt í veröldinni gefa tilefni til vonleysis. Þetta er í fyrsta sinn sem forseti heldur hátíðarávarpið í stað forsætisráðherra

Jarðskjálfti af stærð 3,7 varð við Grjótárvatn á Mýrum í gærkvöldi. Það er þriðji jarðskjálftinn af þessari stærð á eins mörgum mánuðum.

Hátt í milljón tonn af kolefni verða bundin, í nýrri verksmiðju sem sænska orkufyrirtækið Exergie er byggja í Stokkhólmi. Kolefnið verður svo flutt til Noregs og dælt niður í jörðina, á álíka hátt og íslenska fyrirtækið Carbfix hefur þróað.

Frumflutt

17. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,