• 00:27:52Alþjóðamál - Albert Jónsson
  • 00:50:48Grænland - Inga Dóra Guðmundsdóttir
  • 01:13:12Sígild tónlist - Magnús Lyngdal

Morgunvaktin

Stórstyrjöld ekki að brjótast út

Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og ræddi um alþjóðamál. Íran er í mjög veikri stöðu bæði hernaðarlega og pólitískt, og Ísraelsmenn hafa algera yfirburði gagnvart þeim í núverandi átökum, segir Albert. Hvað Trump Bandaríkjaforseti gerir skiptir miklu upp á framhaldið, en hann telur litlar líkur á stór styrjöld brjótist út.

Þjóðhátíðardagur Grænlands er á morgun og af því tilefni heyrðum við í Ingu Dóru Guðmundsdóttur í Nuuk. Athygli heimsins hefur í auknum mæli beinst Grænlandi síðustu mánuði.

Austur-evrópsku tónskáldin Leoš Janáček og Zoltán Kodály voru umfjöllunarefni Magnúsar Lyngdal í spjalli um sígilda tónlist í dag. Báðir nýttu þjóðlagaarfinn mikið í verkum sínum.

Tónlist:

Einar Scheving - Enjoy the silence.

Lýra String Quartet og Ragnheiður Gröndal - Rauðir skógar.

Anne Grete Preus - Fryd.

Frumflutt

20. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,