Morgunvaktin

Selfosskirkja, skák og sígild tónlist

70 ár eru frá vígslu Selfosskirkju, þess glæsilega guðshúss á sínum einstak stað við Ölfusána. Hátíðarmessa verður á sunnudaginn, biskup Íslands predikar. Gunnar Jóhannesson, einn prestanna þar, spjallaði við okkur um kirkjuna, trúna og byggingafræði. Hann lauk námi í henni og sinnir í frístundum.

Svo var kóngspeðinu leikið fram um tvo reiti þegar Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, kom í heimsókn. Reykjavíkurskákmótið hófst í Hörpu í fyrradag, yfir 400 skákmenn taka þátt. Við ræddum um mótið og skáklífið í landinu.

Svo var það sígilda tónlistin. Það líður páskum og af því tilefni fjallaði Magnús Lyngdal um páskatónlist. Við heyrðum meðal annars verk eftir Bach og Haydn.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-03-27

Una Stefánsdóttir, Stefán S. Stefánsson - Vorlauf.

Birt

27. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,