Morgunvaktin

Verkir, fæðingarfistill og Ægisif

Fjöldi fólks þjáist af verkjum hér og þar í líkamanum; stundum er orsökin vituð, stundum ekki. Og þeir geta ýmist verið smávægilegir eða óbærilegir. Nokkrir af helstu verkjasérfræðingum heims sitja ráðstefnu um efnið í Reykjavík í dag og næstu daga. Sigríður Gunnarsdóttir, formaður Skandínavíska verkjafræðifélagsins, og Sigríður Zoëga, deildarstjóri verkjamiðstöðvar Landspítala, komu til okkar.

Við heyrðum í Þórhildi Ólafsdóttur í Úganda - hún sagði okkur frá sólaröfund og ólíkum fuglasöng í Afríku en á Íslandi, og fræddi okkur um fæðingarfistil, sem er algengt og alvarlegt vandamál í Afríku.

Vera Illugadóttir sagði frá fyrirhuguðum endurbótum á Ægisif í Istanbúl, einu helsta kennileiti borgarinnar. Ægisif var reist upp úr 530, löngu áður en Ísland byggðist.

Tónlist:

Ríó tríó - Eitthvað undarlegt.

B.G. og Ingibjörg - Góða ferð.

Ella Fitzgerald - Blue skies.

Willie Nelson, Johnny Cash - On the road again.

Willie Nelson - Oh What A Beautiful World.

Frumflutt

21. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,