Morgunvaktin

Gömul tré í görðum, stangveiði og Vanúatú

Fjallað var um tré og trjágróður en Jón Gnarr, alþingismaður og fyrrv. borgarstjóri, vakti á dögunum athygli á í Vesturbæ Reykjavíkur væru hálfdauð tré víða í görðum sem tími væri kominn til fella. Heimir Björn Janusarson, garðyrkjufræðingur og umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, staðfestir orð Jóns og segir mikilvægt grisja í húsagörðum, það þurfi hins vegar gera eftir kúnstarinnar reglum og best hafa fagmenn með í ráðum.

Unnendur stangveiði eru búa sig undir veiði sumarsins og sumsstaðar er veiði hafin. Margir njóta lífsins best á árbakkanum. Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélgas Reykjavíkur, spjallaði um veiðidellu og veiðivon.

Vera Illugadóttir sagði frá Kyrrahafseyjunum Vanúatú og sögu þeirra en síðustu ár hafa stjórnvöld selt útlendingum ríkisborgararétt fyrir um 16 milljónir íslenskra króna. Margir vafasamir auðmenn og aðrir hafa nýtt sér þetta.

Tónlist:

Hymns to the silence - Van Morrison,

Song of home - Van Morrison,

Green green grass of home - Örvar Kristjánsson.

Frumflutt

11. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,