Morgunvaktin

Langsótt að árás Írans hafi verið yfirvofandi

Framfylgja verður alþjóðalögum og reglum. Þetta hafa ýmsir ráðamenn sagt í tengslum við árásir Ísraels og svo Bandaríkjanna á Íran. En hvaða alþjóðalög og reglur eru það, og hvað gerist ef ríki hunsa í auknum mæli þessar reglur sem þau hafa komið sér saman um? Kári Hólmar Ragnarsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, ræddi þetta.

Arthur Björgvin Bollason flutti okkur tíðindi frá Þýskalandi. Þýski herinn, 17. júní í Berlín og nýafstaðin tónlistarhátíð í höfuðborginni voru á dagskránni í dag.

Líklegt er víða í geymslum leynist hljóðupptökur frá fyrri tíð á snældum eða böndum sem mögulega geta gagnast fræðimönnum í framtíðinni. Einhver fróðleikur, lýsingar, samtöl; bara hvað sem er sem kann varpa ljósi á lífið í landinu. Eftir slíkum upptökum óskar Miðstöð munnlegrar sögu. Leifur Reynisson frá Landsbókasafni og Aron Berg frá safni Ríkisútvarpsins sögðu frá.

Tónlist:

Helena Eyjólfsdóttir, Hljómsveit Finns Eydal - Það sem ekki má.

Rodney Jones - Ain't no sunshine.

Frumflutt

24. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,