Morgunvaktin

Heimsglugginn, bág heilsa hafanna og Saumastofa Kjartans Ragnarssonar

Bogi Ágústsson fjallaði um erlend málefni, m.a. refsiaðgerðir fimm ríkja gegn tveimur ísraelskum ráðherrum, óeirðirnar í Los Angeles og Bellymena og Færaeyjaheimsókn Danakonungs.

Rætt er um málefni hafsins á Hafráðstefnu S.Þ. í Nice í Frakklandi. Heilsu hafsins hnignar vegna loftlagsbreytinga og mengunar. Stefán Jón Hafstein umhverfisverndarsinni sem fylgist með ráðstefnunni fór yfir ástand og horfur.

Leikin voru nokkur lög úr Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson í tilefni þess hann var sæmdur heiðursverðlaunum Grímunnar fyrr í vikunni.

Tónlist:

God only knows - Beach boys,

Af rauðum vörum - Guðrún Á. Símonar,

How deep is the ocean? - Þorgrímur Jónsson, Einar Scheving, Kristinn Smári Kristinsson og Andrés Þór Gunnlaugsson,

Úr Saumastofunni í uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur 1975 voru leikin lögin Morgunstund, Skál krúttið mitt, Lítil ástarsaga, Agalegur auli, Kæru systur og Saumakonusöngur.

Frumflutt

12. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,