Morgunvaktin

Heimsglugginn, fiskneysla og heilbrigð öldrun

Bogi Ágústsson fjallaði um erlend málefni í Heimsglugganum. Kosningaúrslitin í Portúgal á sunnudag voru rædd við Einar Loga Vignisson, og seinni helminginn ræddi hann ástandið á Gaza.

Við fjölluðum líka um fiskneyslu sem stórlega hefur dregið úr á fáeinum áratugum. Hvernig ætli standi á því? Við veltum því fyrir okkur með Hafliða Halldórssyni matreiðslumeistara.

Í síðasta hluta þáttarins komu til okkar þau Kolbeinn H. Stefánsson dósent í félagsráðgjöf og Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum. Við ræddum við þau um það hvernig það er eldast á Íslandi.

Tónlist:

Tríó Guðmundar Ingólfssonar - Kirkjuhvoll.

Sigurður Skagfield - Á Sprengisandi.

Tríó Guðmundar Ingólfssonar - Vorblómin anga.

Frumflutt

22. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,