Við fjölluðum um bandarískt þjóðlíf í fyrsta hluta þáttarins. Jón Óskar Sólnes fylgist með framgöngu alríkisstofnana þar í landi gagnvart fólki, efnahagnum og almennt lífinu í Bandaríkjunum.
Arthúr Björgvin Bollason var á menningarlegum nótum í Berlínarspjalli. Hann ræddi við Ragnar Axelsson, RAX, um sýningu hans á myndum frá Grænlandi, og við Ólaf Kjartan Sigurðsson stórsöngvara, sem syngur nú í fyrsta sinn í þýsku óperunni í Berlín.
Sjávarútvegsskóli GRÓ var til umfjöllunar. Þau Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, og Þór Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskólans, sögðu okkur frá.
Þóra Tómasdóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1, hefur undanfarið unnið að þætti um hræðilegt flugslys sem varð við Sauðahnjúka sumarið 2023, og sérstaklega um náttúrusérfræðingana Skarphéðinn Þórisson og Fríðu Jóhannesdóttur sem þar létust.
Tónlist:
Henry Mancini and his orchestra - Peter Gunn.
Domenico Modugno - Nel blu dipinto di blu (Volare).
Ella Fitzgerald - Cheek to cheek.
Ólafur Kjartan Sigurðarson, Jónas Ingimundarson - Á Sprengisandi.