• 00:28:20Augnheilsa - Haraldur Sigurðsson
  • 00:53:05Fótboltamenn - Helena Jónsdóttir
  • 01:13:18Sígild tónlist - Magnús Lyngdal

Morgunvaktin

Augnheilsa, mjúkir fótboltamenn og sígild tónlist

Við veltum fyrir okkur augnheilsu, framförum í augnlækningum og fleiru á Morgunvaktinni í dag. Tilefnið er sólmyrkvinn, þó ekki hafi landsmenn á stórum hluta landsins þurft setja upp varnarbúnað fyrir augun þegar til kom. Haraldur Sigurðsson augnskurðlæknir kom til okkar og spjallaði vítt og breitt.

Svo var fjallað um nokkra af allra fremstu fótboltamönnum í heiminum. En ekki um snilli þeirra á vellinum heldur um manneskjurnar. Um það vera grjótharður á vellinum en mjúkur og góður maður sem þorir sýna tilfinningar sínar. Helena Jónsdóttir sálfræðingur hefur velt þessu mikið fyrir sér.

Og svo er það klassíkin. Magnús Lyngdal var á sínum stað á föstudegi og fjallaði um sígilda tónlist með sínum hætti. Hann sagði frá fiðluleikararnum Ivry Gitlis í dag.

Tónlist:

Ari Bragi Kárason - Both sides now.

Joni Mitchell - A Case Of You.

Ari Bragi Kárason - Always and Forever.

Birt

14. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,