Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Fjármál sveitarfélaga, Berlínarspjall og Hvalfjarðargöng
Afkoma sveitarfélaganna á síðasta ári var misjöfn eins og gengur. Staða þeirra heilt yfir er líka misjöfn. Lykiltölurnar eru margar og umsvifin og áherslurnar af ólíku tagi. Við sökktum…
Rannsóknarnefnd um Súðavíkurflóðið, 100 ár frá hnattflugi og Evrópuspjall
Sérstök rannsóknarnefnd verður skipuð til að rannsaka málsatvik í tengslum við snjóflóðið í Súðavík í janúar 1995. Fjórtán létust í flóðinu.
Grunnavíkur-Jón, tillögur stjórnlagaráðs um forseta og ferðamál
Já, varðandi forsetaembættið; við skoðuðum stjórnarskrána stuttlega í gær; það sem þar segir um forsetann og hver hugsunin að baki sumum ákvæðum var á sínum tíma. Forsetakaflanum hefur…
Heimsglugginn, verkalýðsmál, forsetakosningar og stjórnarskrá
Bogi Ágústsson settist við Heimgsluggann. Við spjölluðum um vandræði Skoska þjóðarflokksins, það má segja að hann sé í vondum málum. Kosið verður til bæjar- og sveitarstjórna á Englandi…
Breytingar á viðbótarlífeyri, fregnir frá Berlín og staða bólusetninga barna
Mislingar, hettusótt og kíghósti eru dæmi um sjúkdóma sem hafa skotið upp kollinum hér á landi undanfarið, en hversu vel erum við varin fyrir þessum vágestum? Við fórum yfir það uppúr…
Hátt íbúðaverð, lítil bílakaup, forsætisráðherra Spánar í klandri og Neyðarlínan 112
Háir vextir og verðbólga leiða gjarnan til þess að fólk heldur að sér höndum, kaupir minna af vörum og þjónustu og skuldsetur sig minna en í venjulegu árferði. Þetta hefur hins vegar…
Stjórnmál, forsetakosningar, gjörunnin matvæli og sumardagurinn fyrsti
Við fjölluðum um stöðuna í stjórnmálunum og forsetakosningarnar fram undan í þættinum í dag. Ríkisstjórnin nýja hefur nú starfað í rúmar tvær vikur og segja má að kosningabaráttan…
Barnavinafélagið Sumargjöf hundrað ára
Öld er liðin frá stofnun Barnavinafélagsins sumargjafar. Félagið sinnti margvíslegum verkefnum er varða börn en í lögum þess sagði að félagið skildi stuðla að andlegu og líkamlegum…
Fjármálaáætlun, Kant og siðfræði lífs og dauða
Fyrri umræðu um fjármálaáætlun fyrir næstu fimm árin lauk á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Við fórum ítarlega yfir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar í spjalli við Þórð Snæ Júlíusson,…
Samstarf milli Norðurlanda, Evrópuþingskosningar og enskumælandi ráð á Vík
Uppfæra þarf samstarfssamninginn milli Norðurlandanna, Helsingsforssáttmálann, svo hann endurspegli nýjar áskoranir og tækifæri sem Norðurlöndin standa frammi fyrir. Samningurinn ætti…
Innviðaskuld í vegakerfinu, ferðamál og bíó
Við fjölluðum um vegina í landinu og ástand þeirra. Það er ekki gott, á heildina litið. Það þekkja vegfarendur.
Heimsglugginn, rafmagnsbílar og orkuskipti, hraunvarnargarðar í Grindavík
Í Heimsglugganum sagði Bogi Ágústsson okkur meðal annars frá nýútkominni bók Liz Truss, skammlífasta forsætisráðherra Bretlands. Í bókinni fer Truss yfir dagana 49 í Downingstræti…
Dómur mannréttindadómstólsins, Bolungarvík og umdeildur geðlæknir
Við ræddum um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í talningarmálinu í Norðvestur 2021. Hann féll í gærmorgun og er íslenska ríkinu í óhag. Þingmennirnir Berglind Ósk Guðmundsdóttir Sjálfstæðisflokki…
Salan á TM til Landsbankans, þungunarrof, þýskir skógar og tónleikar fyrir Grindvíkinga
Við fjölluðum um Landsbanka/TM málið með Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Heimildarinnar. Nýr kafli var skrifaður í þá sögu á dögunum þegar stjórn Bankasýslunnar blés á skýringar stjórnar…
Ísrael og Íran, ný búvörulög, fregnir frá Brussel og sjúkratryggingar á ferðalögum
Íranir gerðu árás á Ísrael um helgina, og það er í fyrsta sinn sem þeir gera beina árás með þessum hætti þrátt fyrir langvarandi skuggastríð á milli ríkjanna. Við ræddum um árásina,…
Vorverkin í garðinum, siðareglur ráðherra og vefsvæðið island.is
Á dögunum kom út handbók um siðareglur ráðherra. Í henni eru siðareglurnar tíundaðar; þær eru útskýrðar og dæmi tekin um góða siði og ósiði. Handbókin er í raun leiðarvísir fyrir ráðherra…
Velferð iðkenda í íþróttum, framtíð tónlistarskóla og kosningar á Indlandi
Indversk stjórnmál voru einkum til umræðu í Heimsglugga dagsins. Kosningar í þessu fjölmennasta ríki heimsins hefjast í næstu viku, en það tekur nokkrar vikur að kjósa þar. Bogi Ágústsson…
Ný ríkisstjórn, dönsk málefni og tunglið
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, ráðherra og starfandi formaður VG, var fyrsti gestur dagsins. Ný ríkisstjórn var kynnt í gær; fjórum sólarhringum eftir að Katrín Jakobsdóttir upplýsti…
Efnahagsmál, þýsk stjórnmál og afmælisveisla á Seltjarnarnesi
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom til okkar. Við ræddum um Seðlabankann en ársfundur hans var í síðustu viku. Það fer ekki hátt að þrettán milljarða tap varð á rekstri…
Stjórnmál og kosningar
Stjórnmál og kosningar voru á dagskrá hjá okkur í dag. Starfsstjórn er við völd í landinu. Samkomulag um framhald samstarfs stjórnarflokkanna hefur ekki náðst. Við ræddum stöðuna í…
Forsetakosningar og áhrif á stjórnmálin, ferðamál og hugleiðsla
Forsetaembættið virðist eftirsótt sem aldrei fyrr. Útlit er fyrir að fleiri verði í framboði en nokkru sinni áður þótt ólíklegt sé að allt það fólk sem nú safnar meðmælum rati á kjörseðilinn…
75 ár frá stofnun Atlantshafsbandalagsins
75 ár eru í dag síðan Atlantshafssáttmálinn var undirritaður og Atlantshafsbandalagið varð til. Af því tilefni ræddi Bogi Ágústsson við Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, um bandalagið…
Öldrunarráð, Meyvant Sigurðsson og Camorra mafían
Öldrunarráð Íslands eru regnhlífasamtök þeirra sem starfa að hagsmunum aldraðra. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða, er formaður ráðsins, hún sagði frá hlutverki…
Frumvarp um sölu Íslandsbanka komið fram
Frumvarpi um sölu á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka var dreift á Alþingi fyrir páskaleyfi. Fjármálaráðherra fer með söluna en ekki Bankasýsla ríkisins sem annaðist síðustu…
Passíusálmar, páskahefðir og að njóta litlu hlutanna í lífinu
Páskahátíðin er fram undan og þátturinn tók að nokkru leyti mið af því. Það er orðin hefð hjá okkur að fjalla um passíusálma Hallgríms Péturssonar í aðdraganda páska og í hana höldum…
Áfram deilt um kaup Landsbankans á TM, Berlínarspjall og breytingar á námslánum
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og við héldum áfram umfjöllun um áformuð kaup Landsbankans á TM. Síðan Þórður var hér síðast…
Forsetakosningar, bresk málefni og Norðurlandasamstarf
Forsetakosningar fara hér fram eftir rétt rúma tvo mánuði; fyrsti júní er kjördagur. Óvíst er enn hve margir verða í kjöri en tugir afla meðmæla. Enn er nokkuð í að framboðsfrestur…
Grindavík, Kjósarhreppur og pylsur
Enn gýs í nágrenni Grindavíkur og í gær var hafist handa við að hækka enn frekar varnargarða til reyna að forða því að hraun flæði yfir þá. Grindvíkingar eru margir enn í mikilli óvissu…
Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, saga Möðruvalla og stórtæk áform á Vestfjörðum
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og með var honum Magnús Þorkell Bernharðsson, doktor og prófessor í sögu Mið-Austurlanda. Til umræðu var ástandið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs.
Hjúkrunarheimili, hamingja og fjársjóður á hafsbotni
Fyrsti gestur þáttarins var Sigurður Ágúst Sigurðsson, nýkjörinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Einkum var rætt um vöntun á hjúkrunarheimilum en um 250 eru…
Farið yfir fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM
Tilkynning um kaup Landsbankans á TM á sunnudag kom flestum á óvart. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir málið og rakti atburðarásina.
Alþingi, leiðtogafundur og Kína
Oft eru vinnubrögðin á Alþingi gagnrýnd, það er gert af ýmsum ástæðum og af misalvarlegu tilefni. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur er einn þeirra sem hefur mikinn áhuga á störfum…
Sveitarstjórnarmál, ný sýning um Vigdísi og ferðamál
Heiða Björg Hilmisdóttir og Íris Róbertsdóttir voru gestir Morgunvaktinnar í dag. Þær sátu í allan gærdag Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og halda áfram fundarsetum í dag…
Heimsglugginn, félagsleg samvera og Tækniskólinn
Í áratugi hefur ríkið Haítí í Karabíska hafinu glímt við mikil vandræði, sem hafa magnast vegna ofbeldis, náttúruhamfara og afskipta annarra ríkja, meðal annars. Löng og sorglega saga…
Heilbrigðiseftirlit, skattahneyksli í Danmörku og ný lög um skák
Eftirlit með veitingastöðum hefur verið í deiglunni, en í stóru vinnumansalsmáli sem nú er í rannsókn virðist heimsókn Heilbrigðiseftirlitsins í lager að Sóltúni hafa spilað ákveðið…
Metafkoma Landsvirkjunar, kjarasamningar, árás á Teslu-verksmiðju í Þýskalandi og myndvinnsla Katrínar prinsessu
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir kjarasamningsmál á Morgunvaktinni í dag. Búið er að semja fyrir hönd tugþúsunda, aðrir eru enn eftir, en ríkið hefur…
Svíþjóð, Evrópuþingskosningar og upplýsingaóreiða í kringum mat
Sænski fáninn verður dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins eftir nokkrar klukkustundir, eftir að formlega innganga Svíþjóðar í varnarbandalagið gekk í gegn í síðustu…
Kjarasamningar, útlendingamál, Happdrætti HHÍ og bandarísk stjórnmál
Málefni útlendinga hafa verið fyrirferðarmikil á Alþingi undanfarnar vikur. Þingkonurnar Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir komu til okkar…
07.03.2024
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann að venju upp úr klukkan hálf átta. Á dögunum var póstsending frá Færeyjum opnuð. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að…
Sniðganga, fjölgun læknanema og tíu ár frá hvarfi malasísku farþegarþotunnar
Sniðganga hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið, sérstaklega þegar viðkemur málefnum Ísraels og Palestínu. En sniðgönguhreyfingin er ekki ný af nálinni, um sniðgöngu eru þónokkur…
Hagvöxtur, hlerunarmál í þýska hernum og lág fæðingartíðni í Japan
Hagvöxtur mældist 4,1% á síðasta ári, en á síðustu mánuðum ársins hægðist á hagkerfinu. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir þessar tölur á Morgunvaktinni.
Kjaraviðræður hjá hinu opinbera, Evrópumál og stytting framhaldsskóla
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, kom á Morgunvaktina og ræddi um kröfugerð BSRB í komandi kjarasamningsviðræðum. Samningar á opinberum vinnumarkaði losna í lok mánaðarins. Hún…
Fleiri leita til umboðsmanns skuldara
Enn er umtalsverð verðbólga í landinu þótt ekki sé hún jafn mikil og fyrir ári þegar hún fór yfir tíu prósent. Að sama skapi eru vextir háir og hafa verið undanfarin misseri. Allt…
Hlaupársdagur: söguskoðun, lífið á Kanarí og íslenskir töframenn
Þáttur dagsins var óvenjulegur, enda hlaupársdagur óvenjulegur.
Rafbílasala, dönsk málefni og Ásahreppur
Snemma í þættinum var umfjöllun um Guðrúnu Á. Símonar. 36 ár eru í dag síðan hún lést og á laugardaginn, 24. febrúar, var öld síðan hún fæddist. Leikið var brot úr viðtali Jökuls Jakobssonar…
Salan á Íslandsbanka, endurheimt votlendis og lögleiðing kannabis í Þýskalandi
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að selja eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka; rúmlega 40 prósent hlutafjár. Stefnt er að því að allir fái að kaupa – ekki sérvalinn hópur eins og…
Rússland, Úkraínustríðið, NATO og örnefni á Reykjanesi
Undanfarna daga hefur Morgunvaktin fjallað um Rússland og Úkraínu, í tilefni þess að á laugardag voru tvö ár liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands,…
Stríðsátök í heiminum, Fisktækniskólinn í Grindavík og ný rannsókn á votlendi
Það eru víða stríð og átök í heiminum í dag. Mest fer fyrir hernaði Rússa gegn Úkraínu, og átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Friðarumleitanir hafa ekki borið árangur; ekki enn –…
Heimsglugginn, Sjávarklasinn og brunabótamat
Alexei Navalny hefur bæst í hóp andstæðinga Pútíns Rússlandsforseta sem deyja – beint eða óbeint - vegna andstöðunnar við forsetann. Við fórum yfir nokkur dæmi um þessi andlát þegar…
Úkraína og Rússland, útlendingamál og Páskaeyja
Fyrsti gestur þáttarins í dag var Rósa Magnúsdóttir, sagnfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Á laugardag eru tvö ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Langur aðdragandi var…
Málefni útlendinga, Íslendingasamfélagið í Danmörku og verkefni Þjóðskrár
Málefni útlendinga eru fyrirferðarmikil í þjóðfélagsumræðunni þessa dagana og hafa reyndar verið um allnokkurt skeið. Umræðan er óneitanlega nokkuð þvæld eins og gjarnan gerist þegar…
Skriffinnska lækna og áramót í Kína
Heimilislæknar eru hættir að skrifa út tilvísanir vegna barna í þeim tilvikum þar sem þeir sjálfir hafa enga beina aðkomu að málum þeirra. Þeir segja a.m.k. þrjú ársverk fara í það…
Þingmenn samstíga í málefnum Grindvíkinga
Frumvarp um kaup á heimilum Grindvíkinga er komið inn í þingið og sitt sýnist hverjum. Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar,…
Listin að sjóða málma
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og ræddi við Jón Óskar Sólnes sem býr í Washington í Bandaríkjunum og fylgist vel með gangi mála, ekki síst nú fyrir kosningarnar í haust.
Lögreglumenn vantar víðast hvar
Við fjölluðum um löggæslu í landinu í þættinum í dag. Of fáir lögregluþjónar eru við störf miðað við fólksfjölda og verkefni, samkvæmt flestum eða öllum hlutaðeigandi. Rætt var um…
Grindavíkurfrumvarp, Berlínarspjall og rektor Háskólans á Hólum
Skiptar skoðanir eru um frumvarp ríkisstjórnarinnar um uppkaup á eignum Grindvíkinga, en frumvarpið er meðal þess sem við ræddum þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar,…
Hitaveitulögn á Reykjanesi, reykingar og nýr forseti Finnlands
Við fjölluðum um veituumálin á Suðurnesjum; um vatn og rafmagn og lagnir. Hver er staðan nú í byrjun viku eftir tjónið af völdum eldgossins á fimmtudaginn? Og hver eru verkefnin næstu…
Staðan á Reykjanesi
Þátturinn var að mestu helgaður stöðunni á Reykjanesskaga, þar sem fór að gjósa fyrir rétt rúmum sólarhring. Í kjölfarið fór hitavagnslögn í sundur með þeim afleiðingum að tugþúsundir…
Fylgst með eldgosinu og rætt um loftrýmisgæslu, íþróttastarf og Hannes Hafstein
Fylgst var með eldgosinu sem hófst á Reykjanesskaga rétt upp úr klukkan sex í morgun og greint frá nýjustu upplýsingum. Ítarlega var fjallað um gosið í fréttatímum.
Ungverjaland, tónlistarskólar og Amelia Earhart
Í dag ætlum við meðal annars að fjalla um Ungverjaland; um lífið í landinu og stöðu þess í samfélagi þjóðanna. Miklar breytingar hafa orðið undir stjórn Viktors Orban forsætisráðherra…
Erfitt en gott að koma til Grindavíkur
Við huguðum að Grindvíkingum í þætti dagsins. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, ræddi við okkur. Hún er ein þeirra sem fór inn í bæinn í gær til að sækja…
Vill hærra aldurstakmark á samfélagsmiðla
Vísbendingar eru um að ójöfnuður í tengslum við krabbamein færist í aukana hér á landi. Til dæmis býr fólk sem hefur hærra menntunarstig og tekjur almennt við betri heilsu en þau sem…
Háskólamál, ferðaþjónusta og Vetrarhátíð
Við ræddum áfram umfjöllun um fyrirhugaða, eða mögulega, sameiningu Háskólanna á Akureyri og Bifröst. Grétar Þór Eyþórsson, deildarforseti viðskiptadeildar HA var gestur okkar. Efasemda…
Landbúnaður á tímamótum
Í dag er fyrsti febrúar og hann er merkisdagur í Íslandssögunni. Það var jú 1. febrúar 1904 sem við Íslendingar fengum heimastjórn frá Dönum. Fyrir 120 árum í dag. Af því tilefni rifjuðum…
Sameiningar háskóla, dönsk málefni og bókmenntir
Viðræður standa um sameiningu Háskólanna á Akureyri og Bifröst. Um ágæti sameiningar, námið á Bifröst og háskólamál almennt ræddum við við Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, deildarforseta…
Óvissa í kjaraviðræðum
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, yfir stöðuna í kjaraviðræðunum. Samningar þorra fólks í aðildarfélögum Alþýðusambandsins renna…
Mikil óvissa á vinnumarkaði vegna Grindavíkur
Niðurskurður samkeppnissjóða Vísinda- og tækniráðs nemur rúmum milljarði á árinu, samkvæmt fjárlögum. Vísindafólk hefur mótmælt þessu og jafnvel talað um að þetta jafngildi hópuppsögn…
Kjaramál, upphaf kvenréttindabaráttunnar og styttur
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, var gestur þáttarins í dag. Rætt var um kjaramálin vítt og breitt og ástand og horfur í samfélaginu.
Heimsglugginn, áfallasaga kvenna og húsaflutningar
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann í þætti dagsins. Svíar eru einu skrefi nær aðild að Atlantshafsbandalaginu og kosningar verða um helgina í Finnlandi og hlaupin er spenna í…
Ýmislegt spennandi varðandi rannsóknir og meðferð við Alzheimer
Í gær bárust fréttir af því að mögulegt sé að notast við algengar blóðprufur til þess að greina Alzheimer sjúkdóminn, sem er algengasta orsök heilabilunar. Þetta gæti skipt sköpum…
Ánægja með aðgerðir en óvissan alltumlykjandi
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, spjallaði um efnahag og samfélag á Morgunvaktinni í dag. Málefni Grindavíkur verða rædd, sem og húsaleigumarkaðurinn, kjaraviðræðurnar…
Verðum lengur að ná niður verðbólgu
Við fjölluðum um efnahag landsins; reyndum að átta okkur á stöðunni með Katrínu Ólafsdóttur, dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Enn er hér talsverð verðbólga og háir vextir,…
Þurfum að kortleggja allt Reykjanesið betur
Við fjölluðum um Grindavík í dag, um gosið á sunnudag og ástand mála í jörðu niðri - hjá okkur var Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur. Við töluðum líka um aðgerðir sem gripið hefur…
Kúnst að semja
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Á efnisskránni var áframhaldandi umfjöllun um réttarfarshneykslið sem kennt er við bresku póstþjónusta. Fleira breskt var rætt sem og yfirlit…
Valdaskipti af ýmsum toga
Forsetakosningar verða í Bandaríkjunum 5. nóvember og forkosningar Repúblikana hófust í Iowa-ríki í fyrradag. Það fór eins og spáð var, Trump vann yfirburðasigur. Við fjölluðum um…
Fjármálaráðherra um málefni Grindvíkinga
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar m.a. yfir fjárhagshlið skemmda á húsum og öðrum mannvirkjum í Grindavík. Hann ræddi líka um yfirstandandi…
Helstu tíðindi af eldgosinu og ljúfir tónar
Hlustendum voru færð nýjustu tíðindi af eldgosinu í og við Grindavík.
Hugmyndafræði góðtemplara og Margrét Þórhildur drottning í 52 ár
Í tilefni þess að fyrr í vikunni voru liðin 140 ár frá stofnun fyrstu Góðtemplarastúkunnar á Íslandi var fjallað um hugmyndafræði og áhrif stúkunnar í samfélaginu. Nanna Þorbjörg Lárusdóttir…
Póstþjónustuhneykslið í Bretlandi, golfklúbbur berst gegn verðbólgu og Gaupi og EM
Í Heimsglugga dagsins fjallaði Bogi Ágústsson um hneykslismál í Bretlandi, svo nefnt Póstþjónustuhneykslið. Frá 1999 og nokkuð fram á þessa öld voru yfir 700 póstafgreiðslumeistarar…
Forsetakosningar á Íslandi og í Finnlandi og íslensk bindindishreyfing í 140 ár
Í tilefni af forsetakosningum á Íslandi 1. júní var endurleikið viðtal við Svan Kristjánsson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, frá sumri 2020 þegar síðast voru forsetakosningar.
Fjárhagur stjórnmálaflokka, þýsk málefni og álag á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar m.a. yfir fjármál stjórnmálaflokkanna en þeir hafa flestir skilað ársreikningum til Ríkisendurskoðunar…
Jafnrétti, EES-samningurinn og íslenskt táknmál
Mögulegt er að ná jafnrétti á Íslandi fyrir árið 2030, sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu fyrir viku síðan. Við ætlum að velta því fyrir okkur hver staðan…
Meiri aðskilnaður í búsetu milli tekjuhópa
Við fjölluðum um hagi fólks; þeir eru æði misjafnir; og þeir eru æði misjafnir eftir því hvar fólk býr. Kolbeinn H. Stefánsson félagsfræðingur hefur rannsakað tekjur og eignir fólks…
Heimsglugginn, frumkvöðlaverkefni í Kenía og svefnrannsóknir
Bogi Ágústsson talaði um stöðuna í Mið-Austurlöndum og Ísrael. Þar dró til tíðinda á dögunum þegar næstráðandi Hamas-samtakanna var veginn. Að auki var farið yfir kosningar sem efnt…
Kjarasamningar, tímamót í Danmörku og orð ársins
Stóra málið fram undan í þjóðlífinu eru kjarasamningarnir sem vonir standa til, að um náist þjóðarsátt og til verði þjóðarsáttarsamningarnir hinir seinni. Ágætt hljóð er í forystufólki…
Áramótaávörp og fastir liðir
Við fáum nýjan forseta 1. ágúst - Guðni Th. Jóhannesson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Hann upplýsti um ákvörðun sína í nýársávarpinu í gær. Um þá ákvörðun fjölluðum við klukkan…
Aðventa Gunnars er fáanleg á arabísku
Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins.
Óstöðugleiki snúinn aftur í íslensk stjórnmál
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kom á Morgunvaktina og ræddi um stjórnmálaárið sem er að líða. Hann sagði árið hafa einkennst af því…
Stóuspeki, gervigreind og alþjóðleg efnahagsmál
Endurleikin voru tvö viðtöl frá því fyrr á árinu, annað við Svavar Hrafn Svavarsson, prófessor í heimspeki, um stóuspeki og hitt við Jörgen Pind, prófessor emeritus, um gervigreind.
Litlu jólin á Morgunvaktinni
Morgunvaktin hélt litlu jólin í þætti dagsins. Leikin voru fjölmörg jólalög, jólasögur voru lesnar og við rifjuðum upp jólastemmninguna á Þorláksmessu árið 1949.
Sorg um hátíðar, efnahagsmál og raddir barna
Sorgin bankar oft upp á um hátíðarnar, við hugsum til þeirra sem eru horfnir á braut og heimsækjum kirkjugarðana. Sorgarmiðstöð veitir stuðning við syrgjendur og við fengum til okkar…
Líklegt að dragi úr barneignum
Samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofunnar eru líkur á að landsmenn verði hálf milljón fyrir miðja öldina og 600 þúsund árið 2074. Mannfjöldaspár eru ónákvæm vísindi en gefa vísbendingar…
Eldgos á Reykjanesskaga
Fjallað var eldgosið sem hófst á Reykjanesskaga í gærkvöldi. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur kom í þáttinn og greindi frá stöðunni auk þess að bera gosið saman við fyrri eldgos.
Munur á trausti til stjórnmála eftir kaupmætti
Við ætlum í dag að fjalla um nýja greiningu á íslensku samfélagi. Niðurstöðurnar sýna að mikill munur er á trausti gagnvart ráðamönnum eftir fjárhagsstöðu. Eignafólk treystir stjórnvöldum…
Þingmenn líklega í frí á morgun
Jólaleyfi þingmanna hefst líklega á morgun, ef tekst að afgreiða fjárlög og tengd mál. Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og Andrés Ingi Jónsson, þingmaður…
Stubb líklega næsti forseti Finnlands
Í Heimsglugganum ræddi Bogi Ágústsson m.a. um leiðtogafund ESB sem hefst í Brussel í dag. Búist er við að samþykkt verði að hefja aðildarviðræður við Úkraínu. Einnig var fjallað um…
Skólamál, alþjóðleg efnahagsmál og Sameinuðu arabísku furstadæmin
Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið í síðustu viku; við héldum áfram umfjöllun um námsárangur unglinga. Ársæll Guðmundsson, sem nú er skólameistari Borgarholtsskóla, hefur…
Stjórnmál, fjármál og kuldi í Skagafirði
Ríkisfjármálin voru til umfjöllunar þegar Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í vikulegt spjall. Fjárlagafrumvarpið hefur breyst töluvert frá því það var lagt fram…
Skipulagsmál, Evrópuspjall og mannréttindi
Samfélag eftir máli heitir nýútkomin bók. Í henni fjallar Haraldur Sigurðsson skipulagsfræðingur um skipulag þéttbýlis á síðustu öld; um stefnur og strauma, hugsjónir og átök. Haraldur…
Traust, ferðamál og PISA
Síðasti örþáttur Árna Snævarr um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna fór í loftið í þættinum í dag. Rætt var við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, um yfirlýsinguna.
Allsherjar endurskoðunar þörf í kerfum og samfélaginu
Bogi Ágústsson settist við Heimsglugginn og á dagskrá voru bresk stjórnmál. Boris Johnson kom í gær fyrir sérstaka rannsóknarnefnd vegna viðbragða stjórnvalda við Covid-faraldrinum…
Horfinn heimur, Vesturbyggð, dönsk málefni og mannréttindi
Árni Snævarr fjallaði áfram um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna í tilefni af 75 ára afmælis hennar. Í örþætti dagsins var sjónum beint að því hvað felist í því að mannréttindi…
Öld frá fæðingu Mariu Callas
Snemma í þættinum var fluttur fyrsti hluti stuttþáttaraðar Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, um Mannréttindayfirlýsingu SÞ í tilefni þess að 75 ár eru liðin…
Borgarmál, stjórnmál í Evrópu og Háskólinn á Bifröst
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, spjallaði vítt og breitt um málefni Reykjavíkur. Fjárhagsáætlun næsta árs verður tekin til afgreiðslu á borgarstjórnarfundi…
Hvernig mun gervigreind nýtast í stjórnmálum?
Í fyrsta viðtali dagsins var rætt við Guðmund Magnússon sagnfræðing um séra Friðrik en bók hans um æskulýðsleiðtogann hefur vakið mikla athygli vegna upplýsinga um kynferðislegar hneigðir…
Heimsglugginn, ráðlagður dagskammtur og sálumessa Mozarts
Bogi Ágústsson ræddi við dr. Sigurð Emil Pálsson, sérfræðing í netöryggi og fjölþáttaógnum, í Heimsglugganum í dag. Sigurður Emil starfar á vegum utanríkisráðuneytisins hjá Öndvegissetri…
Aðventuganga, loftslagsráðstefna og Elgin-styttur
Það líður að aðventu; hana nota margir til að undirbúa jólahaldið; sækja aðföng, baka smákökur og þar fram eftir götum. Einar Skúlason er ekki í þeim hópi. Hann ætlar á aðventunni…
Efnahagsmál, Berlínarspjall og samgöngubætur í Árneshreppi
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, spjallaði meðal annars um efnahagsleg áhrif jarðhræringanna á Reykjanesskaga - þau eru talsverð - og um Marel, líkt og síðustu vikur.
Líkur á að vopnahlé verði framlengt um nokkra daga
Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands og formaður Rauða krossins á Íslandi, var gestur Morgunvaktarinnar. Hún ræddi um vopnahléið á Gaza, sem…
Fólk njóti forgangs í orkuskorti
Fyrsti gestur þáttarins var Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri. Hún sagði frá aðkomu Orkustofnunar að málum tengdum jarðhræringunum á Reykjanesskaga og talaði um fyrirhugaða breytingu…
Argentína, Helena hætt í körfubolta og ferðaspjall
Málefni Argentínu voru í brennidepli í Heimsglugganum. Bogi Ágústsson ræddi við Helga Hrafn Guðmundsson sagnfræðing, sem bjó í Argentínu í áratug og þekkir vel til stöðu mála. Nýr…
Málefni öryrkja, dönsk tíðindi og John F. Kennedy
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, var gestur Morgunvaktarinnar. Hún ræddi um nýja herferð bandalagsins, Blanki, þar sem sjónum er beint að kjörum þeirra verst settu…
Efnahagshorfur, Berlínarspjall og reynslan frá Vestmannaeyjum
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar fjallaði m.a. um efnahagshorfur næsta árs en Hagstofan hefur gefið út nýja þjóðhagsspá; útlit er fyrir minni hagvöxt. Fjáraukalög ársins…
Utanríkisstefna Íslands ekki eitt ákveðið plagg
Við fjölluðum um utanríkisstefnu Íslands í þættinum í dag. Til hennar er annað slagið vitnað og talsvert var um það í tengslum við fræga hjásetu Íslands í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu…
Þörf á að taka utan um öll mál Grindavíkur
Staðan í og við Grindavík var rædd í þættinum í dag. Jóhann Friðrik Friðriksson þingmaður Framsóknarflokksins og Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins, sitja bæði á þingi…
Óvænt tíðindi í breskum og portúgölskum stjórnmálum
Heimsglugginn var á sínum stað. Bogi Ágústsson fjallaði um stjórnmálaástandið í tveimur ríkjum; Bretlandi og Portúgal. RIshi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, gerði í vikunni óvæntar…
Lífið verður aldrei samt aftur
Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavíkurkirkju, var gestur Morgunvaktarinnar í dag. Það hefur mætt mikið á henni eins og öðru forystufólki í samfélaginu í Grindavík og Grindvíkingum…
Þarf að eyða þeirri óvissu sem hægt er fyrir Grindvíkinga
Við fylgjumst með gangi mála í og við Grindavík. Hugur okkar er auðvitað hjá fólkinu sem þurfti að yfirgefa heimili sín í flýti á föstudagskvöldið og býr við þessa miklu óvissu sem…
Katrín Jakobsdóttir og Páll Einarsson
Þátturinn var helgaður yfirvofandi náttúruvá í eða við Grindavík. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræddi um aðstæður Grindvíkinga sem þurftu að yfirgefa heimili sín á föstudagskvöldið…
Venus og Veiga Grétarsdóttir
Stofnun í Suður-Kóreskum fræðum hefur verið komið á fót í Háskóla Íslands. Hér er ríkur áhugi á Suður-Kóreu, tungumálinu og menningunni að sögn Geirs Sigurðssonar prófessors. Það er…
Rishi Sunak hefur ekki tekist að uppfylla markmið sín
Rúmt ár er síðan Rishi Sunak varð forsætisráðherra Bretlands. Við upphaf valdatíðarinnar setti hann sér fimm markmið, sum hafa náðst að einhverju leyti en önnur alls ekki, líkt og…
Saga Ísraels, geimréttur og heilaheilsa
Við fjöllum um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs í þættinum í dag. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og formaður stjórnar Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands var gestur okkar.
Efnahagslegt mikilvægi Svartsengis, Berlínarspjall og internetið.
Þórður Snær Júlíusson spjallaði um efnahag og samfélag. Við ræddum um hlutabréfaverð sem hefur lækkað nokkuð og útsvar sveitarfélaga sem á að hækka í Garðabæ, sem og um möguleg efnahagsleg…
Harðræði gegn börnum, áhrif afsláttardaga og stjórnmál í Evrópu
Og meðal þess sem við ætlum að gera í dag er að reyna að skilja íslenskt samfélag frá því eftir stríð og fram eftir síðustu öld; það samfélag sem lét lítil börn á vöggustofum afskipt…
Gasaborg umkringd, Hvolsvöllur og tengdamömmur
Fjórar vikur verða liðnar á morgun frá mannskæðum árásum Hamas á Ísrael. Ísraelsmenn lýstu yfir stríði og hafa gert enn mannskæðari árásir á Gasa. Nú berast fréttir af því að þeir…
Pólitískir skandalar, ávaxtaneysla á niðurleið og sjónskynjun
Bogi Ágústsson spjallaði um erlend málefni þegar hann settist við Heimsgluggann. Hneykslismál í pólitík í Bretlandi og Danmörku voru til umræðu; rannsókn á viðbrögðum breskra stjórnvalda…
Dómsmál Trump, verðbólga og frumbyggjahneyksli
Samkvæmt skoðanakönnunum eru töluverðar líkur á því að Donald Trump gæti orðið forseti Bandaríkjanna á ný. En í millitíðinni berst hann í dómsölum víða um landið - fjögur mál gætu…
Hagnaður banka, Berlínarspjall og listasafn ASÍ
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, rýndi meðal annars í nýleg árshlutauppgjör stóru bankanna þriggja, hagnaðurinn er myndarlegur í milljörðum talið - en er hann mikill…
Mígreni, leiðtogafundur og dýrtíð
Hér er gríðarleg dýrtíð, alvarleg húsnæðiskrísa og okurvextir innheimtir. Fákeppni ríkir á lykilmörkuðum. Það er ómögulegt að lifa af á taxtalaunum. Hagsmunir fjármálakerfisins eru…
Hundrað ár frá fæðingu Margrétar Indriðadóttur
Jafnréttismál voru til umfjöllunar í kjölfar kvennaverkfallsins á þriðjudaginn. Gestir voru Dagbjört Hákonardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir,…
Stjórnmál, íslenski fæðuklasinn og Úkraína
Stjórnmál voru til umfjöllunar í Heimsglugganum í dag og þá ekki síst barátta lýðræðisafla og popúlista um völd. Bogi Ágústsson ræddi stöðu mála í Argentíu, Venesúela, Bandaríkjunum,…
Kvennaverkfall um land allt, dönsk málefni og fingrarím
Við fjölluðum í dag um kvennaverkfallið í gær. Við hringdum til Húsavíkur og Víkur í Mýrdal og könnuðum hvernig gekk, forvitnuðumst um ávörp og annað, heyrðum af þátttöku, áhrifum…
Kvennaverkfall
Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson fyrst um ýmislegt sem varðar konur á vinnumarkaði. Hann sagði svo frá afkomu nokkurra fyrirtækja og horfum í efnahagslífinu.
Heilsugæslan, blýhúðun og kvennaverkfall
Við höfum fjallað um heilbrigðisþjónustuna í þættinum, bæði í síðustu og þarsíðustu viku, og héldum því áfram í dag. Nú var sjónum beint að heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, þar…
Hvað má og má ekki í stríði?
Árás á spítala á Gaza fyrr í vikunni vakti upp gríðarlega reiði og hefur verið fordæmd sérstaklega. Ástæðan er ekki síst sú að það má ekki sprengja upp sjúkrahús - ekki heldur í stríði.
Hörmungar fyrir botni Miðjarðarhafs, kvennafæði og friðlýsingar
Við fórum út í heim með Boga Ágústssyni. Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs var til umfjöllunar - skelfingarnar þar - og við minntumst líka Martti Attisari sem lést á mánudaginn. Hann…
Framtíð læknisþjónustu, laxveiði og hagvöxtur í heiminum
Framtíð læknisþjónustu á Íslandi var til umræðu í þætti dagsins. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, situr í nýjum starfshópi um málið og ræddi við okkur um áskoranir…
Íbúðirnar heim, Berlínarspjall og Endurmenntun
Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um kaup íslenskra lífeyrissjóða á rúmlega 1.600 íbúðum af norsku félagi en áður voru þær…
Útlit fyrir breytingar í pólskum stjórnmálum
Stólaskipti Bjarna Benediktssonar og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur voru til umfjöllunar. Sú ráðstöfun kom sumum á óvart en öðrum ekki. Við fórum yfir atburðarásina og mátum…
Skelfilegt ástand og enginn friður í sjónmáli
Við fjölluðum um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs í þættinum í dag. Það er í einu orði sagt skelfilegt. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur ræddi við okkur um stöðu mála.
Mörg tækifæri í því að bæta heilbrigðisþjónustuna
Claudia Goldin hagfræðingur hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár. Hún er aðeins þriðja konan sem hlýtur þessi verðlaun, sem eru veitt í minningu Alfreds Nobels en eru í raun hagfræðiverðlaun…
Afsögn Bjarna Benediktssonar og afleiðingar
Við fjölluðum í dag um afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Hann upplýsti um ákvörðun sína í gærmorgun, um það bil klukkustund eftir að álit Umboðsmanns alþingis…
Friður, efnahagsmál, Þýskaland og hálendið
Alþjóðleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs stendur í Reykjavík í dag og á morgun. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ og Guðmundur Hálfdánarson stjórnarformaður ræddu…
Heimsmálin og sameining á Vestfjörðum
Fjallað var um ástand mála í Nagorno-Karabakh og það sett í sögulegt ljós. Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ, fór aftur til nítjándu aldar til að útskýra átök Armena…
Utanríkismál, brothættar byggðir og það góða við kennarastarfið
Fyrstu gestir okkar voru alþingismenn; til okkar komu Diljá Mist Einarsdóttir og Logi Már Einarsson. Við töluðum einkum um utanríkismál og afstöðu þeirra til þess sem er að gerast…
Áttatíu ár frá flótta danskra gyðinga til Svíþjóðar
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fletti sögubókunum. Áttatíu ár eru um þessar mundir frá því að fjölda gyðinga í Danmörku tókst að sleppa undan Nasistum, yfir til Svíþjóðar.
Óbreyttir stýrivextir gleðiefni
Húsnæðismál voru á dagskrá í dag. Sá mikilvægi málaflokkur er ekki í góðu horfi; það vantar húsnæði og fyrir vikið er verðið; kaupverð og húsaleiga, hærra en góðu hófi gegnir. Fyrir…
02.01.2023
27.12.2022
,