Morgunvaktin

Alþjóðamál, snjallsímanotkun og sprenging í garðyrkjuáhuga

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag. Hún ræddi um snjallsíma og samfélagsmiðla, og það hvað fólk getur gert til vera meðvitaðra um notkun sína og takmarkað hana ef það vill.

Björn Malmquist fréttamaður er í Haag í Hollandi þar sem leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fer fram. Hann sagði frá því sem er á dagskránni þar, og líka frá fundi utanríkisráðherra ESB-ríkjanna í Brussel. Við heyrðum líka viðtal við Kristin Gunnarsson sem fer með íslenska ferðamenn í göngutúra um Brussel.

Guðríður Helgadóttir, formaður Garðyrkjufélags Íslands, var síðasti gestur þáttarins. Félagið er 140 ára og hún ræddi um sprengingu í áhuga á garðyrkju, lystigarða, villt svæði og ýmislegt fleira.

Tónlist:

Norah Jones - Don't know why.

Ella Fitzgerald - I get a kick out of you.

Nina Simone - My baby just cares for me.

Frumflutt

23. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,