Morgunvaktin

Fjögur ár frá innrás Rússa, Berlínarspjall og siðfræði persónuverndar

Fjögur ár eru í dag síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Árásir hafa staðið linnulítið síðan þrátt fyrir víðtæka alþjóðlega fordæmingu; og þvingunaraðgerðir og samþykktir t.d. Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna. Hópur þjóðarleiðtoga er kominn til Kyiv, til sýna Úkraínumönnum stuðning á þessum tímamótum. Björn Malmquist fréttamaður er með í för og sagði okkur frá.

Stjórnmál og menning voru á dagskrá Berlínaspjalls í dag. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá nýafstöðunum landsfundi Kristilegra demókrata, vandræðum AfD-flokksins og Kvikmyndahátíðinni í Berlín sem lauk um helgina.

Við fjölluðum líka um persónuvernd út frá sjónarhóli siðfræði og heimspeki. Við komum meðal annars inn á alla þessa miðlun okkar á persónuupplýsingum á alþjóðlegu samfélagsmiðlunum sem safna þeim og nota í ábataskyni. Sigurður Kristinsson heimspekingur og prófessor var með okkur.

Tónlist:

Eagles - Peaceful easy feeling.

Eagles - Take it easy.

Svavar Knútur Kristinsson - Refur.

Max Richter - Winter 1.

Birt

24. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,