Morgunvaktin

Íslandsstofa, norsk stjórnmál og sígild tónlist

Fyrir fimmtán árum var Íslandsstofu komið á fót. Henni var ætlað efla ímynd og orðspor landsins.

Hvernig ætli það gangi? Hvaða augum líta aðrir þjóðir Ísland og Íslendinga? Verkefnin eru reyndar margvísleg, t.d styðja íslensk fyrirtæki í útrás. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmastjóri Íslandsstofu, spjallaði um stöðu Íslands í samkeppni þjóðanna um fjárfestingu, ferðamenn og allra handa tækifæri.

Norska ríkisstjórnin er sprungin, Miðflokkurinn gekk út úr henni í gær og Verkamannaflokkurinn er einn eftir. Ástæðan er ágreiningur um Evrópumál, en ágreiningur hefur verið innan beggja flokka. Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur þekkir vel til í Noregi, er nýflutt þaðan, og hún kom til okkar.

Magnús Lyngdal sagði okkur frá bresk-bandaríska hljómsveitarstjóranum Leopold Stokowski í spjalli um sígilda tónlist. Hann stýrði Fíladelfíu-hljómsveitinni í hátt í þrjá áratugi.

Tónlist:

Marianne Faithfull - As tears go by.

Frumflutt

31. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,