Morgunvaktin

Hilmar Snorrason heiðraður fyrir störf að slysavörnum sjómanna

Margir sóttu Glaumbæ í Skagafirði heim í gær á íslenska safnadeginum. Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagafjarðar, sagði okkur frá því og ýmsu sem leynist í varðveislurými safnsins á Sauðárkróki en það var opnað gestum og gangandi í tilefni dagsins.

Á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á dögunum var Hilmar Snorrason, fyrrverandi skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, heiðraður fyrir störf sín. Hilmar spjallaði um slysavarnir til sjós en mikil hugarfarsbreyting varð á sínum tíma; áður lét enginn sjá sig með hjálm á þilfari - nema faðir Hilmars sem þótti fyrir vikið nokkur skrýtinn.

Björn Malmquist fjallaði um stjórnmál í Evrópu. Kosið var í þremur Evrópuríkjum í gær og leiðtogar Bretlands og Evrópusambandsins ræðast við í dag um samskipti og viðskipti yfir Ermarsundið. Þá lék Björn viðtal sem hann átti á dögunum við belgískan grínista og sjónvarpsmann, Lieven Scheire, sem var skiptinemi á Íslandi fyrir aldarfjórðungi og viðheldur íslenskukunnáttunni með gervigreindarforriti.

Sigyn Blöndal flutti pistil frá Filippseyjum og sagði frá ýmsu úr sögu og menningu landsins.

Tónlist:

Komdu í kvöld - Ragnar Bjarnason,

I let ta song go out of my heart - Dizzy Gillespie, Stan Getz, Oscar Peterson o.fl.

Frumflutt

19. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,