Morgunvaktin

Fáninn, Berlínarspjall og messað á Hrafnseyri

Fyrir einum og hálfum mánuði var lögum íslenska fánann breytt. flagga allan sólarhringinn, fram í miðjan ágúst. Við ræddum um þessa breytingu og ýmislegt annað sem tengist fánanum við Hörð Lárusson sem er vel heima í efninu.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá mikilli kæti í Þýskalandi eftir góðan sigur fótboltalandsliðsins á HM á sunnudaginn og fjallaði um gamalt bréf sem Sigmund Freud sendi kunningja sínum fyrir margt löngu en kom nýlega í leitirnar.

Á morgun fögnum við lýðveldisstofnuninni. vanda verður messa á Hrafnseyri í Arnarfirði, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar; séra Hildur Inga Rúnarsdóttir, prestur á Þingeyri, messar. Við slógum á þráðinn til hennar.

Tónlist:

Christopher Glynn, Rachel Podger - Sonata in F Major, op.24 : II. Adagio molto espressivo.

Valgeir Guðjónsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir - Vögguvísa í húsi farmanns.

Birt

16. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,